FréttStafrænt aðgengi

Tilbúin í valdeflingu

By 9. nóvember 2026No Comments

Sænska sjálfseignarstofnunin Funka Foundation mun í samstarfi við ÖBÍ réttindasamtök styðja samtök fatlaðs fólks í smærri löndum og minni fötlunarhópum við að efla stafræna getu sína.

Fatlað fólk á litlum málsvæðum eða með sjaldgæfar greiningar getur átt erfitt með að finna viðeigandi upplýsingar um stafrænt aðgengi og stoðtækni. Á sama tíma kunna samtök þeirra að skorta fjármagn, starfsfólk eða þjálfun til að veita skýrar og aðgengilegar leiðbeiningar. Þetta þýðir að margir einstaklingar standa frammi fyrir hindrunum varðandi þátttöku, samskipti og sjálfstæði sem hægt væri að yfirstíga.

Með verkefninu „EmpowermentReady“, sem styrkt er af Erasmus+, viljum við takast á við þennan vanda og efla minni samtök svo þau geti veitt félagsmönnum sínum hagnýtan og aðgengilegan stuðning hvað varðar stafræna þjónustu.

„Þrátt fyrir tækniframfarir virðist stafræna gjáin fara breikkandi hjá ákveðnum notendahópum,“ segir Susanna Laurin, framkvæmdastjóri Funka-stofnunarinnar. „Við hlökkum til að vinna náið með samtökum og einstaklingum að því að brúa bilið og veita fleirum sjálfstæði.“

Samstarf Svíþjóðar og Íslands undirstrikar tækifærin sem felast í því að miðla þekkingu þvert á landamæri, en niðurstöðum verkefnisins verður dreift um alla Evrópu og öllum samtökum er frjálst að nýta þær.

Stafræn umbreyting – fyrir alla

Að stuðla að skilvirkri notkun stoðtækni og aðgengilegra stafrænna verkfæra er sérstaklega mikilvægt nú þegar Ísland er að innleiða tilskipunina um aðgengi að vefsetrum og smáforritum hins opinbera. Verkefnið mun einnig fjalla um vaxandi mikilvægi stoðtækni sem byggir á gervigreind og nýrri tækni.

„Þetta verkefni er mikilvægur hlekkur í því að þau tækifæri sem felast í stafrænni umbreytingu verði að veruleika fyrir fatlað fólk. Til þess að geta nýtt sér stafrænar lausnir þarf fólkið okkar að vera meðvitað um hvernig hægt sé að aðlaga þær að þeirra þörfum og fáir betri til þess að upplýsa um það en aðildarfélögin,“ segir Rósa María Hjörvar, stafrænn verkefnastjóri hjá ÖBÍ réttindasamtökum.

Í nánu samstarfi við notendur á Íslandi, í Svíþjóð og víðar munum við þróa verkfærakistu, netnámskeið og leiðbeiningar fyrir leiðbeinendur.

Með því að veita samtökum hagnýta þekkingu og fræðslu styður verkefnið við inngildandi stafræn umskipti sem gera fötluðu fólki kleift að taka fyllri þátt í stafrænu samfélagi og á vinnumarkaði.

Viltu taka þátt?

Ef þú hefur áhuga á stafrænum hliðum inngildingar, aðgengis og stoðtækni skaltu endilega fylgjast með! Við munum halda vinnustofur þar sem þú getur lagt þitt af mörkum og síðar gefast einnig tækifæri til að prófa netnámskeiðið.