Verðlaunin eru veitt þeim sem hafa stuðlað að einu samfélagi fyrir alla. Verndari verðlaunanna er Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson. Hönnuður verðlaunanna er Þórunn Árnadóttir, vöruhönnuður.
Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum, flokki einstaklinga, flokki fyrirtækja/stofnana og flokki umfjöllunar/kynningar. Eftirtaldir hlutu tilnefningu:
Í flokki einstaklinga:
- Aðalheiður Sigurðardóttir, fyrir vefinn „Ég er Unik“, sem er verkfæri til að setja saman einstaklingsmiðaða handbók um einhverfu og ADHD.
- Brynjar Karl Birgisson, fyrir Lego-verkefnið „Titanic“ og söguna „Minn einhverfi stórhugur“.
- Rannveig Traustadóttir, fyrir rannsóknir og kynningu á nýrri hugmyndafræði um félagslega sýn á málefni fatlaðs fólks.
Í flokki fyrirtækis/stofnunar:
- Bíó paradís, fyrir fjáröflun og framkvæmdir til að bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
- Sjónarhóll, fyrir ráðgjöf og dyggan stuðning við réttindabaráttu foreldra barna með sérþarfir.
- Öryggismiðstöðin, fyrir verkefnið „Esjan rúllar“.
Í flokki umfjöllunar/kynningar:
- Harpa Snjólaug Lúthersdóttir, fyrir kennsluefnið „Má ég vera memm?“
- Ingólfur Sigurðsson, fyrir opinskáa umræðu um andlega líðan íþróttafólks.
- Snædís Rán Hjartardóttir, fyrir baráttu sína við stjórnvöld vegna synjunar á túlkaþjónustu.

