Skip to main content
Frétt

TMF tölvumiðstöð leitar að verkefnastjóra

By 30. apríl 2025maí 2nd, 2025No Comments
Merki TMF tölvumiðstðvar tækni, miðlun, færni

Um er að ræða starf sem felur í sér mjög fjölbreytt verkefni sem öll tengjast fræðslu og ráðgjöf, bæði á netmiðlum, á námskeiðum og í einstaklingsráðgjöf. TMF tölvumiðstöð sinnir ráðgjöf og fræðslu um stoðbúnað og stafrænar lausnir sem gagnast geta fólki með fötlun eða skerðingar, bæði gagnvart einstaklingum, fagaðilum og aðstandendum.

Starfið býður upp á sveigjanleika og möguleika á minna starfshlutfalli ef áhugi er fyrir því. Við leitum eftir einstaklingi sem:

Hefur góða almenna þekkingu á tölvutækni og stafrænum lausnum.

Hefur reynslu af eða þekkingu á fötlun og skerðingum.

Hefur reynslu af fræðslustarfsemi eða ráðgjöf.

Hefur brennandi áhuga á því að auka færni og tækifæri fólks með fötlun.

Sjálfstæði í vinnubrögðum, samskiptahæfni og skipulögð vinnubrögð eru nauðsynleg.

Umsóknarfrestur er 9. maí 2025 og umsóknir skulu sendar á rosa@obi.is