DómsmálFréttHúsnæðismál

Tvö mál unnust í héraðsdómi

Reykjavíkurborg þarf að greiða tveimur fötluðum einstaklingum miskabætur vegna áralangrar biðar eftir sértæku félagslegu húsnæði. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þessari niðurstöðu í tveimur málum sem ÖBÍ réttindasamtök og Landssamtökin Þroskahjálp höfðuðu gegn Reykjavíkurborg.

Niðurstaða dómanna byggði m.a. á ákvæðum reglugerðar þar sem mælt er fyrir um að umsóknum um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk skuli raða á biðlista og að umsækjandi skuli upplýstur um hvenær fyrirhugað sé að húsnæðisúrræði hans geti orðið tilbúið. Þá skuli sveitarfélag tryggja reglubundið samráð við umsækjanda á biðtíma og upplýsa um stöðu á biðlista, áætlaða lengd biðtíma og þau úrræði sem standi honum til boða á biðtíma.

Í báðum málunum taldi dómurinn að háttsemi borgarinnar vegna meðferðar umsókna einstaklinganna um sértækt húsnæðisúrræði hafi vikið svo frá þeirri háttsemi sem krefjast mátti af borginni að skilyrði fyrir greiðslu miskabóta væru uppfyllt. Borgin veitti afar takmarkaðar upplýsingar um meðferð og framgang mála um húsnæði til handa umsækjendunum. Skortur á upplýsingagjöf var talinn hafa verið íþyngjandi og haft tilfinnanleg áhrif á líf þeirra, m.a. þar sem örðugt hefur verið fyrir þá að skipuleggja líf sitt til framtíðar vegna óvissu og skorts á fyrirsjáanleika um úthlutun hentugs húsnæðis.

Í báðum málunum fengu umsækjendurnir engar upplýsingar um stöðu sína á biðlista í um fimm ár. Þá taldi dómurinn þær upplýsingar sem veittar voru eftir þann tíma ekki uppfylla kröfur reglugerðarinnar og fólu ekki í sér sértækar upplýsingar svo umsækjendurnir hefðu getað áttað sig á stöðu sinni.  Annar umsækjendanna sótti um sértækt húsnæðisúrræði hjá Reykjavíkurborg árið 2017 og hinn 2018 og eru umsóknir beggja enn þann dag í dag á biðlista.

Málin tvö eru á meðal sjö sambærilegra mála sem höfðuð voru af hagsmunasamtökunum á sama tíma. Telja samtökin ljóst að málin tvö verði fordæmisgefandi fyrir hin málin fimm og önnur sambærileg mál.