Skip to main content
Frétt

Varða kannar fjárhagsstöðu, heilsu, líðan og vinnumarkað

By 25. maí 2021No Comments
Öryrkjabandalag Íslands hefur samið við Vörðu, rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins, um að gera stóra könnun um fjárhagsstöðu, heilsu, líðan og þátttöku á vinnumarkaði. Könnunin er mjög mikilvægur liður í upplýsingaöflun Öryrkjabandalagsins til að meta stöðu öryrkja, örorkustyrktaka og endurhæfingalífeyristaka. Við viljum hvetja þig til að taka þátt.

Niðurstöður könnunarinnar munu hjálpa okkur við að greina hvaða erfiðleika hópurinn glímir við.  Þessi könnun er samskonar þeirri sem Varða gerði meðal félagsmanna stéttarfélaganna fyrr í vor og vakti mikla athygli.

Það tekur um 15 mínútur að svara henni. Spurt er um húsnæði, fjárhagsstöðu, fátækt, líðan, heilsufar, heilbrigðisþjónustu og vinnumarkað.  

Framkvæmd könnunarinnar er alfarið í höndum Vörðu, sem sá um hönnun spurninga, uppsetningu, framkvæmd og mun sjá um úrvinnslu á niðurstöðum.  

  • Könnunin verður opin í tvær vikur og hægt er að svara henni í snjallsíma, spjaldtölvu eða í tölvu.  
  • Könnunin er á tveimur tungumálum, íslensku og ensku.  
  • Þrír þátttakendur vinna 30.000 kr. gjafakort fyrir þátttökuna.  
  • Könnunin opnar þriðjudaginn 25. maí og verður lokað þriðjudaginn 8. júní.  

 

Hér er hlekkur á könnunina á íslensku: https://www.research.net/r/oryrkjabandalag

Hér er hlekkur á könnunina á ensku: https://www.research.net/r/oryrkjabandalag?lang=en

 

Það er einnig hægt að skipta um tungumál efst í horninu hægra megin þegar fólk er komið inn í könnunina.

Við hvetjum alla öryrkja, örorkustyrktaka og endurhæfingarlífeyristaka til að taka þátt í könnuninni, enda afar mikilvægt að fá sjónarmið sem flestra til að niðurstöðurnar nýtist sem best við að móta og styðja við kröfur Öryrkjabandalags Íslands.