Skip to main content
Frétt

Vefsíða ÖBÍ tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna.

By 22. janúar 2016No Comments
Vefur ÖBÍ er einn af fimm bestu í tveimur flokkum: Aðgengilegir vefir og Non-profit vefir.

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.

Átta manna dómnefnd skipuð sérfræðingum í vefmálum, ásamt tveim varamönnum, hefur metið hátt á annað hundrað verkefna sem send voru inn að þessu sinni og úrslit liggja nú fyrir. Veitt verða verðlaun í 15 flokkum, en fjöldi flokkanna endurspeglar breidd þeirra verkefna sem vefiðnaðurinn á Íslandi kemur að. Í sviga fyrir aftan heiti verkefnis koma fram samstarfsaðilar, ef einhverjir.

Hátíðin sjálf verður haldin með pompi og prakt þann 29. janúar í Gamla Bíó.