Skip to main content
Frétt

Eru íþróttir leikvangur ofbeldis?

By 28. janúar 2019No Comments

Ráðstefnan „Eru íþróttir leikvangur ofbeldis?- vinnum gegn því“ fer fram miðvikudaginn 30. janúar frá kl. 10:30 – 17:30 í Háskólanum í Reykjavík og er hluti af dagskrá Reykjavíkurleikanna.

Erlendir og íslenskir fyrirlesarar munu deila reynslu sinni, sögum og fræðum. Bakgrunnur fyrirlesara er mjög fjölbreyttur allt frá fræðimönnum sem hafa rannsakað málefnið um árabil til  forsvarsmanna í íþróttahreyfingunni sem vinna að forvörnum og fræðslu og þolenda af báðum kynjum sem segja sína sögu.

Mikilvægt málefni sem snertir okkur öll. 

Einnig verður boðið verður upp á þrjár vinnustofur um málefnið fimmtudaginn 31.janúar í íþróttamiðstöðinni í Laugardal frá kl. 10-12 þar sem áhersla verður á greiningu og viðbrögð, samvinnu að öruggara umhverfi og öflugri forvarnir.

Nánari upplýsingar og dagskrá er hægt að finna á rig.is og facebook.

Að ráðstefnunni standa: Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Háskólinn í Reykjavík og RIG – Reykjavik International Games.