Tilgangur framkvæmdaáætlunarinnar er að stuðla að þátttöku fatlaðs fólks með aukinni miðlun þekkingar á Norðurlöndum og nánara samstarfi um málefni fatlaðs fólks.
Norrænt samstarf um málefni fatlaðs fólks:
er til hagsbóta fyrir löndin og skiptir máli fyrir fatlað fólk á Norðurlöndunum,
er viðbót við og eflir starf sem fram fer í löndunum og sem miðar að þátttöku fatlaðs fólks á öllum sviðum samfélags- ins,
eykur og skapar samlegðaráhrif við annað alþjóðlegt sam- starf og vinnu sem miðar að þátttöku allra,
skapar forsendur fyrir miðlun reynslu, varðveislu þekkingar og þróun aðferða fyrir þátttöku fatlaðs fólks á nokkrum mikilvægum sviðum og í ákveðnu samhengi,
eykur meðvitund um samþættingu fötlunarsjónarmiða í lykilstarfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar og Norður- landaráðs, á borð við skrifstofur, stofnanir, áætlanir og tengslanet, og gerir þar með norrænt og norrænt-baltneskt samstarf að góðu dæmi um hvernig opinberar stofnanir geti unnið með fjölbreytni og þátttöku fatlaðs fólks,
bætir aðgengi fatlaðs fólks að starfsemi Norrænu ráðherra- nefndarinnar og Norðurlandaráðs og innan stofnananna,
styrkir ímynd Norðurlanda sem nýskapandi og félagslega sjálfbærs svæðis fyrir alla þar sem enginn er skilinn útundan,
samþættir sjónarmið jafnréttis milli kvenna, karla, stúlkna og pilta; réttindi barna og ungmenna sem og sjálfbæra þróun á þýðingarmikinn hátt í starfseminni.