Hér getur þú leitað að einhverju á síðu obi.is,
sláðu inn leitarorðið og leitaðu
150 Reykjavík
Reykjavík, 14. janúar 2021
Efni: Umsögn Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 (kostnaður við framkvæmd greiðslna) þingskjal 92 – 91 mál.
ÖBÍ lýsir stuðningi við frumvarpið sem hér er til umsagnar og felst í að Tryggingastofnun skulu greiða allan kostnað vegna greiðslna opinberra réttinda svo að girt sé fyrir mismunun á grundvelli búsetu að þessu leyti. Þessi kostnaður getur verið umtalsverður fyrir lífeyrisþegar og þá sérstaklega sem hlutfall af þeirra tekjum.
Bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 eru greiddar úr landi til lífeyrisþegar sem flytja lögheimili sitt til annars aðildarríkis EES-samningsins. Hins vegar eru bætur og greiðslur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð nr. 99/2007 ekki greiddar úr landi, sem hefur í för með sér að greiðslur til þeirra frá TR lækka við að flytja lögheimili úr landi.
Ekkert um okkur án okkar.