Skip to main content
Umsögn

91. mál. Almannatryggingar (kostnaður við greiðslur)

By 20. janúar 2021No Comments
Nefndasvið Alþingis
Velferðarnefnd
Austurstræti 8-10

150 Reykjavík

Reykjavík, 14. janúar 2021

Efni: Umsögn Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 (kostnaður við framkvæmd greiðslna) þingskjal 92  – 91 mál. 

ÖBÍ lýsir stuðningi við frumvarpið sem hér er til umsagnar og felst í að Tryggingastofnun skulu greiða allan kostnað vegna greiðslna opinberra réttinda svo að girt sé fyrir mismunun á grundvelli búsetu að þessu leyti. Þessi kostnaður getur verið umtalsverður fyrir lífeyrisþega og þá sérstaklega sem hlutfall af þeirra tekjum.

Bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 eru greiddar úr landi til lífeyrisþega sem flytja lögheimili sitt til annars aðildarríkis EES-samningsins. Hins vegar eru bætur og greiðslur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð nr. 99/2007 ekki greiddar úr landi, sem hefur í för með sér að greiðslur til þeirra frá TR lækka við að flytja lögheimili úr landi. 

Ekkert um okkur án okkar.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir
Formaður ÖBÍ