Skip to main content
FréttHúsnæðismálMálþing

Málþing um ungt fólk á hjúkrunarheimilum

By 15. mars 2022júní 8th, 2023No Comments
Árið 2022 eru rétt um 150 ungir fatlaðir einstaklingar vistaðir á hjúkrunarheimilum.

Til að vekja athygli á þessari stöðu heldur ÖBÍ málþingið „Ungt fólk á endastöð“,  miðvikudaginn 16. mars kl. 13 á Grand Hótel, Sigtúni 38, Reykjavík.

  • Málþingið verður í beinu streymi á  Zoom og er rit- og táknmálstúlkað.
  • Tónmöskvar og nettenging verða í boði.
  • Ekki þarf að skrá sig ef tekið er þátt á zoom

Dagskrá

Málþingið opnað kl. 13:00
  • Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands
Ávarp heilbrigðisráðherra
  • Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra
Að moka upp sjó með teskeið
  • Margrét Sigríður Guðmundsdóttir og Alexandra Sif Herleifsdóttir
Eiga ungir heima á hjúkrunarheimili?
  • María Fjóla Harðardóttir forstjóri Hrafnistu
Kaffihlé
  • Boðið upp á léttar kaffiveitingar
Fækkum gráu svæðunum
  • Guðjón Bragason sviðstjóri lögfræði- og velferðarsviðs Sambands íslenskra sveitafélaga
Niðursetningar nútímans – hvað við viljum og hvað við viljum ekki
  • Bergþóra Bergsdóttir
Stofnanavistun fatlaðs fólks frá sjónarhorni þjóðréttarlegra mannréttindaskuldbindinga
  • Eiríkur Smith réttindagæslumaður fatlaðs fólks
Kaffihlé
  • Stutt hlé
Pallborð
  • Elsa B. Friðfinnsdóttir, sérfræðingur í Heilbrigðisráðuneytinu, Heiða Björg Hilmisdóttir formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, Viðar Eggertsson skrifstofustjóri Landssambands eldri borgara, Vilhjálmur Hjálmarsson formaður málefnahóps ÖBÍ um heilbrigðismál.

Niðurstöður og næstu skref

Málþingi slitið kl. 16:15


Málefnahópar ÖBÍ um húsnæðismál og heilbrigðismál