Skip to main content
FréttHvatningarverðlaun

Tilnefningar til Hvatningarverðlauna ÖBÍ 2021

By 2. desember 2021september 1st, 2022No Comments
Stjórn Hvatningarverðlauna ÖBÍ hefur opinberað tilnefningar til verðlaunanna í ár. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn 3. desember, á alþjóðlegum degi fatlaðs fólks.

Í ár eru tilnefnd eftirfarandi, birt hér í stafrófsröð:

Haraldur Ingi Þorleifsson, fyrir verkefnið Römpum upp Reykjavík. Tilgangur verkefnisins er að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslunum og veitingahúsum í Reykjavík.

Seres hugverkasmiðja, fyrir sjónvarpsþáttaröðina – Dagur í lífi. Þættirnir gefa einstaka sýn í líf fatlaðs fólks á öllum aldri.

Styrmir Erlingsson, fyrir hugrekki, kraft og einstakan metnað sem starfrænn verkefnastjóri hjá Velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar.

Reykjadalur, fyrir sumarbúðirnar í Mosfellsdal, sem auðga framboð í frístundastarfi fyrir fötluð börn og ungmenni.

Öll þessi verkefni endurspegla nútímalegar áherslur um þátttöku, sjálfstæði og jafnrétti fatlaðs fólks og stuðla að einu samfélagi fyrir alla, og falla því vel að tilgangi Hvatningarverðlaunanna.

Þau sem voru tilnefnd fengu í morgun senda köku af því tilefni. Myndin sem fylgir fréttinni er af því þegar starfsmenn Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar gæddu sér á sinni köku í boði Styrmis.

Streymt verður frá því þegar forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaunin, en vegna 50 manna samkomutakmarkana er því miður ekki hægt að hafa verðlaunaafhendinguna opna.

Streymið verður aðgengilegt á Facebook síðu ÖBÍ, athöfnin hefst klukkan 16.