Skip to main content
AlmannatryggingarKjaramálUmsögn

90. mál. Almannatryggingar (frítekjumark vegna lífeyristekna)

By 20. janúar 2021september 1st, 2022No Comments
Nefndarsvið Alþingis
Velferðarnefnd
Austurstræti 8-10

150 Reykjavík

Reykjavík, 20. janúar 2021

Efni: Umsögn Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 (frítekjumark vegna lífeyristekna) þingskjal 91  – 90 mál. 

ÖBÍ lýsir stuðningi við hækkun frítekjumarka vegna tekna lífeyrisþega við útreikning lífeyris almannatrygginga. Upphæðir frítekjumarka hafa verið láta standa í stað árum og jafnvel áratugum saman í stað þess að þau séu uppfærð og látin fylgja öðrum hækkunum, s.s. hækkun lífeyris almannatrygginga og/eða launavísitölu.

Frítekjumörk fyrir útreikning tekjutryggingar og heimilisuppbótar fyrir örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega hafa verið óbreytt frá árinu 2009.  Frítekjumark á atvinnutekjur hvetur örorkulífeyrisþega sem hafa vinnufærni til atvinnuþátttöku. Á meðan frítekjumarkið stendur í stað og laun á vinnumarkaði hækka, þá skila launahækkanir sér ekki til örorkulífeyrisþega. Ef frítekjumark vegna atvinnutekna hefði hækkað í samræmi við hækkun launavísitölu frá árinu 2009, var frítekjumarkið komið yfir  217.000 kr. á mánuði í stað 109.600 kr. í janúar 2020.

Ekkert um okkur án okkar!

Þuríður Harpa Sigurðardóttir
Formaður ÖBÍ