Kosningar

Þroskahjálp setur af stað „Flokkahjálp“ fyrir sveitarstjórnarkosningar

Þroskahjálp hefur hleypt af stokkunum nýju verkefni undir heitinu Flokkahjálp með það að markmiði að beina sjónum að málefnum fatlaðs fólks í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Verkefnið á að hjálpa bæði kjósendum og stjórnmálaflokkum að meta hversu inngildandi stefnuskrár framboðanna eru.

Á vefsíðunni www.flokkahjalp.is hefur verið sett upp sérstakt greiningartól þar sem hægt er að líma inn stefnuskrár stjórnmálaflokka og fá mat á því hversu mikil áhersla er lögð á réttindi og hagsmuni fatlaðs fólks.

Samkvæmt Þroskahjálp er markmiðið að gera umræðu um aðgengi, þjónustu og þátttöku fatlaðs fólks sýnilegri í kosningabaráttunni, en málaflokkurinn hafi hingað til ekki verið mjög áberandi í umræðunni.

Þá býður verkefnið stjórnmálaflokkum einnig að nýta sér sérstaka stefnuskrá Flokkahjálpar í málefnum fatlaðs fólks. Vonast samtökin til að hún geti orðið leiðarljós í komandi meirihlutaviðræðum og samstarfssáttmálum sveitarfélaga eftir kosningar.

Forsvarsfólk verkefnisins segir greiningartólið jafnframt geta lífgað upp á kosningabaráttuna með nýjum og gagnvirkum hætti, um leið og það hvetur flokka til að huga betur að réttindamálum fatlaðs fólks.