Stafrænt aðgengi
Í okkar samfélagi er allt orðið stafrænt og því er gert ráð fyrir að öll geti notað stafræna tækni til að tileinka sér upplýsingar og nálgast þjónustu. En það er eins og með annað aðgengi, að það þarf að vera búið að gera ráð fyrir fötluðum notendum í hönnun lausnanna ef þær eiga að virka fyrir okkar hópa. Þess vegna er mikilvægt að leggja áherslu á stafrænt aðgengi frá upphafi.
Almenn löggjöf
Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem var lögfestur á Alþingi árið 2025, er sérstaklega fjallað um aðgengi að stafrænum lausnum. Í 9. gr. er kveðið á um að fatlað fólk skuli hafa aðgengi að upplýsingum og samskiptum þar með talið upplýsinga- og samskiptatækni og kerfum, svo sem vefsvæðum og stafrænni þjónustu.
Aðgengislöggjöf
Í flestum löndum bætist svo við aðgengislöggjöf sem skýrir nánar hvernig tryggja eigi stafrænt aðgengi í reynd. Í Bandaríkjunum er það ADA-löggjöfin sem notast er við og svokallaðan WCAG-staðal. En í Evrópu er löggjöfin þekkt sem EAA, og styðst við EN 301 549 staðalinn. Evrópustaðallinn skilgreinir mælanleg lágmarksviðmið um framsetningu upplýsinga á stafrænu formi, hvort sem er á vef, í smáforritum, í hugbúnaði eða skjölum, svo fólk með fötlun geti notað vörur og þjónustu til jafns við aðra.
Íslensk löggjöf
Þann 18. mars 2026 varð staðallinn að lögum á Íslandi með lögum nr. 20/2026 um aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila, sem er innleiðing tilskipunar Evrópusambandsins 2016/2102. Áður var almenn krafa um stafrænt aðgengi í þjónustu hins opinbera tryggð samkvæmt lögum nr. 85/2018 um jafna meðferð utan vinnumarkaðar.
Í nýju lögunum er gert ráð fyrir að allir opinberir aðilar móti aðgengisstefnu og séu með aðgengisyfirlýsingu sem sé auðfundin á vef eða í smáforriti. Það er því ekki hægt að útvista alfarið aðgengismálum til ráðgjafa eða gervigreindar, heldur þurfa þarfir fatlaðs fólks að vera miðlægar í hönnun, þróun og rekstri stafrænna lausna.
Lögin byggja á fjórum stoðum: skynjanleiki, skiljanleiki, nothæfni og traust og gera ráð fyrir ákveðnum notendahópum.
Notendahópar og ólíkar þarfir
Til einföldunar má flokka notendur í átta hópa eftir ólíkum aðgengisþörfum. Slík flokkun nær vissulega aldrei utan um allan fjölbreytileika fólks, en getur verið gagnleg leiðarlína fyrir hönnuði og þróunarteymi til þess að ná betur utan um verkefnið.
-
-
- Sjónskerðingar
- Heyrnarskerðingar
- Hreyfiskerðingar
- Talskerðingar
- Þroskahömlun
- Geðrænar áskoranir
- Taugafræðilegar áskoranir
- Samþættar skerðingar
-
Svona listi verður auðvitað alltaf takmarkaður, og sumir notendahópar falla á milli eða tilheyra mörgum hópum. Þannig má til dæmis finna lesblinda sem notast við upplestur, líkt og fólk með sjónskerðingu og þurfa sömuleiðis minna áreiti eins og fólk með taugafræðilegar áskoranir. Það er líka mikilvægt að skilja að svona gátlisti kemur aldrei í veg fyrir samráð við raunverulega notendur, en hann gefur okkur samt vísbendingu um hvaða hópar geta lent í vandræðum með stafrænt aðgengi.
EN 301 549 staðallinn sem gildir um opinberar stafrænar lausnir hér á landi, nálgast málið með öðrum hætti. Þar eru í kafla 4 settar fram 11 starfrænar þarfir notenda (e. functional performance statements):
1. Notkun án sjónar
2. Notkun með skerta sjón
3. Notkun án litaskynjunar
4. Notkun án heyrnar
5. Notkun með skerta heyrn
6. Notkun án eða með takmarkaðri talgetu
7. Notkun með takmarkaða hreyfigetu eða styrk
8. Notkun með takmarkað seilingarsvið
9. Lágmörkun á áreiti sem getur valdið ljósnæmum flogum
10. Notkun með þroskahömlun, skertri málgetu eða námsgetu
11. Notkun sem virðir persónuvernd
Hér eru fötlunarhópum skipt eftir þörfum og þannig verður til að mynda sjónskerðingarhópurinn að þremur ólíkum þörfum, þar sem það í raun hefur töluvert mismunandi afleiðingar. Hér er einnig talað um persónuvernd, sem er mikilvægt þegar við tölum um traust lausna – að fatlað fólk sé ekki þvingað til þess að deila viðkvæmum persónuupplýsingum vegna skorts á aðgengi – þannig snýst þetta um þörf okkar hópa fyrir sama öryggi og aðrir fá að njóta.
Þessi listi tekur líka tillit til fleiri stafrænna afurða, þar sem öll stafræn þjónusta í löndunum í kringum okkur er undirlögð einhverjum stöðlum. Þannig verður fýsískur rammi stafrænnar lausnar einnig mikilvægur, hvar er lyklaborð staðsett á sjálfsafgreiðslukassa? Hvernig kveikir maður á skjáletri á sjálfsala?
Það er mikilvægt að taka notendur með frá fyrstu skrefum þróunar og þá ekki síst fatlaða notendur, þeirra sjónarmið er mikilvægt og það skilar ávallt betri lausn að hafa okkar hópa með í þróunarvinnunni. Það er einnig mikilvægt að vera með eftirfylgd og gera notendaprófanir með fötluðum notendum eftir að lausnin er komin á prófunarstig – en það dugar ekki. Þá er oft orðið of seint að breyta þeim grundvallarákvörðunum í hönnun sem útiloka okkar hópa.
Stoðtækni
Staðallinn tryggir að fatlaðir notendur geti notað stoðtækni, til dæmis: talgervla (TTS), augnmýs, rofastýringar og raddstýringu. Hjá TMF er hægt að fá ráðgjöf um val á stoðtækni og mat á þörfum notenda.
Íslensk máltækni
Almannarómur hefur umsjón með íslenskri máltækniáætlun og þar á meðal þróun talgervla, söfnun raddgagna og annarra gagna sem nýtast í stafrænu aðgengi fyrir fólk með fötlun. ÖBÍ vinnur í nánu samstarfi við Almannaróm um stoðtækni meðal annars um þróun nýrra talgervla. Íslenskan er í sjálfu sér líka aðgengismál, að geta notað stafrænar lausnir á sínu móðurmáli er mikið hagsmunamál fyrir fatlað fólk og ÖBÍ vinnur því náið með Almannarómi og stjórnvöldum um að ýta á eftir íslenskum viðmótum í allri stafrænni tækni.
Samráð
Samráð við notendur er grundvallarkrafa í allri löggjöf og stöðlum. Það er mikilvægt að tala við notendur á öllum stigum hönnunar, þróunar og reksturs stafrænna kerfa. Það eru til ýmsar sjálfvirkar lausnir sem eiga að tryggja stafrænt aðgengi en þær fanga aldrei nema helming aðgengisvandans og þess vegna þarf ávallt að prófa lausnir með raunverulegum notendum.
Yfirlýsing um aðgengi
Í lögum um aðgengi að vefsetrum og smáforritum hins opinbera er gert ráð fyrir aðgengisyfirlýsingu þar sem gerð er grein fyrir hvernig lausnin sé aðgengileg fyrir fólk með fötlun, hvaða hlutar hennar séu ekki aðgengilegir og hvenær áætlað sé að aðgengisvandinn sé leystur. Notendur þurfa að geta nálgast svör við eftirfarandi spurningum:
- Hversu aðgengilegur er vefurinn eða smáforritið og hvaða aðgengiskröfur uppfyllir það?
- Hvaða aðgengishindranir eru enn til staðar og hvernig getur notandi látið vita af þeim eða óskað eftir aðgengilegri lausn?
Varaleið
Stafræn viðmót munu aldrei geta verið fullaðgengileg fyrir alla hópa öllum stundum. Þegar búið er að tryggja almennt aðgengi fyrir öll með því að fylgja eftir stöðlum og vera í samráði við notendur, þá þarf að huga að viðeigandi aðlögun og varaleiðum. Hvernig er hægt að sækja þjónustuna ef notandi hefur enga stafræna færni eða ræður ekki yfir rafrænum skilríkjum. Það er á ábyrgð þjónustuveitanda að öll geti nálgast vörur eða þjónustu óháð fötlun. Er hægt að senda tölvupóst? Mæta á staðinn eða hringja?
Hvar get ég lært meira?
Stafrænt aðgengi er sérsvið og mikilvægt að tileinka sér þá þekkingu sem þarf til að mæta kröfum. Það er meðal annars hægt að gera með því að sækja námskeið og fá vottun. ÖBÍ réttindasamtök eru í samstarfi við IAAP sem eru alþjóðleg samtök aðgengissérfræðinga sem sjá um að votta. Hægt er að nálgast upplýsingar og annað á heimasíðu þeirra.
Auk þess vinnum við með Funka Foundation í Svíþjóð, sem sérhæfir sig í fræðslu um stafrænt aðgengi, hægt er að nálgast fræðslu þeirra hér.
Aðgengisúttekt
Á Íslandi eru nokkrir aðilar sem sérhæfa sig í aðgengisúttektum og ráðgjöf, þar á meðal Sjá, Mennsk og Reykjavík Marketing.

