Skip to main content

Ráðgjöf

Á skrifstofu ÖBÍ býðst fötluðu fólki og aðstandendum þeirra frí ráðgjöf félagsráðgjafa og lögfræðinga um réttindamál.

Hægt er að hringja inn og fá ráðgjöf varðandi málefni og réttindi fatlaðs fólks og örorku- og endurhæfingarlífeyristaka. Áætlaðu tími fyrir hvert símtal er um 10 til 15 mínútur.

Símavakt ráðgjafa er á fimmtudögum frá kl. 13 til 15 í síma 530 6710
Netfang ráðgjafa ÖBÍ er: radgjof@obi.is 

Ráðgjafar okkar forgangsraða viðtölum og úthluta tímum ef ekki er hægt að leysa mál í gegnum síma eða tölvupóst.

Fyrir flóknari mál er einnig hægt að bóka tíma hjá ráðgjafa í gegnum móttökuna í síma 530 6700 eða með tölvupósti: mottaka@obi.is

Hið opinbera býður einnig fötluðu fólki upp á ráðgjöf 

Réttindagæsla fyrir fatlað fólk aðstoðar fatlað fólk við að ná fram rétti sínum þegar réttindi þess eru ekki tryggð eða þau brotin.
Sími: 554-8100 Netfang: rettindagaesla@mannrettindi.is Réttindagæslan | Ísland.is

Teikning af konum að ræða saman.

Sveitarfélögin bjóða upp á félagslega ráðgjöf og veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál.

Þegar brotið er á réttindum fatlaðs fólks og málið er fordæmisgefandi fyrir heildina eða stóra hópa fólks er kannað hvort lagt skuli í málaferli. Stjórn ÖBÍ tekur ákvörðun þar um.