Fjólublátt ljós við barinn, aðgengishvatning UngÖBÍ, er veitt ár hvert. Fjólubláa ljósið er veitt þeim sem hafa stuðlað að bættu aðgengi fatlaðs fólks að skemmtanalífi á Íslandi.
Opnað hefur verið fyrir innsendingu tilnefninga og rennur fresturinn út 9. júní. Markmiðið með viðurkenningunni er að hvetja fólk og fyrirtæki á Íslandi til að hafa aðgengismál í forgangi og stuðla að samfélagi fyrir alla.
