Skip to main content
AlmannatryggingarTRUmsögn

Upplýsingaskylda og eftirlitsheimildir TR

By 9. desember 2022desember 13th, 2022No Comments

Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (upplýsingaskylda og eftirlitsheimildir), þingskjal 66 – 66. mál.

ÖBÍ tekur undir með flutningsmönnum frumvarpsins að eftirlitsheimildir Tryggingastofnunar ríkisins (TR) og upplýsingaskylda einstaklinga gangi of langt þegar þriðja aðila, maka umsækjanda, er gert að taka þátt í meðferð máls sem í raun er ekki tengt honum.

Fjármagnstekjur eru einu tekjur maka sem geta haft áhrif á lífeyrisgreiðslur almannatrygginga. Einu gögnin sem TR notar til að skoða fjármagnstekjur umsækjanda og maka eru skattframtöl aðila. Því er ljóst að engin ástæða er fyrir TR að krefjast upplýsinga frá maka eða fresta afgreiðslu mála vegna skort á upplýsingum frá maka.

Samkvæmt 43. gr. almannatryggingalaga er ýmsum aðilum, m.a. skattayfirvöldum skylt að veita TR upplýsingar að því marki sem það telst nauðsynlegt til að unnt sé að framfylgja lögunum. Er því ljóst að TR getur óskað eftir skattframtölum beint frá Skattinum ef nauðsyn krefur og því ekki þörf á því að krefjast aðkomu maka lífeyrisþega við afgreiðslu stofnunarinnar.

Ekkert um okkur án okkar.

Virðingarfyllst,

Þuríður Harpa Sigurðardóttir,
formaður ÖBÍ

Sigríður Hanna Ingólfsdóttir,
félagsráðgjafi ÖBÍ


Umsögn ÖBÍ, 9. desember 2022.

Almannatryggingar (upplýsingaskylda og eftirlitsheimildir). 66. mál, lagafrumvarp.