Skip to main content
Umsögn

36. mál. Fræðsla um vefjagigt og endurskoðun á skipan sérhæfðrar endur­hæfingar­þjónustu. 22.10.2019

By 5. febrúar 2020No Comments
Nefndasvið Alþingis
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík
 
 

Reykjavík, 22. október 2019

Umsögn Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) um tillögu til þingsályktunar um fræðslu um vefjagigt og endurskoðun á skipan sérhæfðrar endurhæfingarþjónustu, þingskjal 36 – 36. mál.

Tekið er undir með flutningsmönnum þingsályktunartillögunnar um mikilvægi aukinnar fræðslu og vitundarvakningu um vefjagigt. Allt fram á þennan dag hafa sjúklingar búið við fordóma fólks sem hefur ekki trú á tilvist sjúkdómsins og oft á tíðum eiga þeir sjálfir í erfiðleikum með að greina ástæður vanlíðunar sinnar, sem tengist oft öðrum kvillum. Vefjagigtin sést ekki utan á fólki, mælist ekki í blóði og kemur ekki fram á röntgenmyndum, en veldur miklum verkjum og hefur veruleg áhrif á líðan og líf þess.

Það þarf að bæta greiningu, stytta biðtíma eftir þjónustu og bjóða upp á heildræna meðferð við vefjagigt. ÖBÍ hvetur til þess að þingsályktunartillagan verði samþykkt.

Ekkert um okkur án okkar.

Með vinsemd og virðingu,

Þuríður Harpa Sigurðardóttir. formaður ÖBÍ
Emil Thoroddsen, formaður málefnahóps ÖBÍ um heilbrigðis-mál