
ÖBÍ réttindasamtök hafa tekið til skoðunar áform um lagasetningu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, sem snýr að því að auka skýrleika laganna sem og að breyta þeim ákvæðum laganna efnislega sem ekki þykja hafa náð þeim markmiðum sem að var stefnt með nýju örorkulífeyriskerfi.
ÖBÍ vill koma eftirfarandi ábendingum og athugasemdum á framfæri.
Grunnmat við mat á rétti einstaklinga til sjúkra- og endurhæfingargreiðslna
Í fyrirhuguðu frumvarpi er ætlunin að bæta við ákvæði/ákvæðum í lögunum um almannatryggingar um grunnmat, sem er nýtt hugtak, við mat á rétti einstaklinga til sjúkra- og endurhæfingargreiðslna. Að mati ÖBÍ þarf að stíga varlega til jarðar að takmarka rétt fólks til sjúkra- og endurhæfingargreiðslna. Þá er mikilvægt að slíkt mat lengi ekki biðtíma umsækjanda eftir sjúkra- og endurhæfingargreiðslum og/eða verði þess valdandi að umsækjendur verði tekjulausir á meðan beðið er eftir niðurstöðu grunnmats.
Tímamörk réttindamyndunar, erlent örorkumat og tryggingatilvik
Í fyrirhuguðu frumvarpi á að skýra betur út tímamörk réttindamyndunar til örorku- og hlutaörorkulífeyris. Einnig þarf að skýra betur afmörkun á áhrifum erlends örorkumats og aðgreiningu milli sama tryggingatilviks og nýs tryggingatilviks þegar örorka hefur þegar verið metin í öðru ríki. Í áformunum er hvergi að finna breytingartillögur hvað þetta varðar. Í nýlegum úrskurðum úrskurðarnefndar velferðarmála (ÚRVEL) nr. 813/2025 og 164/2026 komst nefndin að þeirri niðurstöðu að ákvarðanir Tryggingastofnunar (TR) um að synja umsækjendum um örorkulífeyri um að gangast undir örorkumat þar sem þau voru með örorkumat í öðru ríki áður en þau hófu búsetu á Íslandi, væri andstæð lögum um almannatryggingar. Ef áform eru um að leggja til að TR verði heimilt að synja umsækjendum um að gangast undir örorkumat á fyrrgreindum forsendum mun ÖBÍ mótmæla áformunum harðlega.
Tryggja verður að fatlað fólk og fólk með skerta starfgetu sem býr hér á landi hafi næga framfærslu óháð því hvort það hafi fengið örorkumat í öðru ríki. Þrátt fyrir að fólk sem hér er búsett geti átt rétt á félagslegum greiðslum á grundvelli örorkumats í öðru ríki er oft um engar eða mjög lágar greiðslur að ræða sem duga fólki engan veginn til framfærslu. ÖBÍ telur ljóst að ríkinu beri skylda til að tryggja næga aðstoð við framfærslu vegna örorku og fötlunar á jafnréttis grundvell samkvæmt 76. gr. og 65. gr. stjórnarskrárinnar og samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sbr. lög nr. 80/2025. Í tilviki fólks sem fengið hefur örorkumat í öðru EES ríki er að mati samtakanna auk þess um að ræða brot á grundvallarreglu EES samningsins um frjálsa för fólks.
Með því að synja fólki um að gangast undir örorkumat er ekki aðeins komið í veg fyrir að það geti sótt um örorkulífeyrisgreiðslur heldur tryggir örorkumat ýmis önnur réttindi. Meðal þeirra réttinda sem leiða af rétti til örorku eru t.a.m. barnalífeyrir, heimilisuppbót, maka- og umönnunarbætur, orlofs- og desemberuppbætur, árleg eingreiðsla til örorkulífeyristaka og bifreiðarstyrkir fyrir hreyfihamlað fólk og blinda. Réttur á örorkuskírteini veitir handhafa auk þess ýmis konar afslætti hjá fyrirtækjum og stofnunum ásamt því að greiða lægra gjald fyrir heilbrigðisþjónustu. Þá getur örorkumat haft áhrif á umsóknir um ýmsa félagslega þjónustu hjá sveitarfélögum og einkaaðilum, þ.m.t. í tengslum við umsóknir um félagslegt húsnæði.ÖBÍ leggur áherslu á að ríkið tryggi öllu fötluðu fólki sem búsett er hér á landi mannsæmandi kjör á jafnréttis grundvelli í samræmi við innlendar og alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar.
Lokaorð
Það getur reynst aðkallandi að skýra lögin betur og styrkja ákvæði laganna svo markmiðum laganna sé náð, en ÖBÍ ítrekar að það megi aldrei vera á kostnað þess sem á allt sitt undir.
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Sigríður Hanna Ingólfsdóttir
félagsráðgjafi ÖBÍ réttindasamtaka
Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Áform um lagasetningu – Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007
Mál nr. S-133/2026 [Örorka og málefni fatlaðs fólks] Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 14. ágúst 2026

