AlmannatryggingarKjaramálTRUmsögn

Áform um breytingu á lögum um almannatryggingar [Orlofs- og desemberuppbót]

By 10. ágúst 2026ágúst 21st, 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök hafa tekið til skoðunar áform um lagasetningu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007, sem snúa að því að bæta kjör lífeyrisþega og að auka skýrleika laganna með skýrari lagastoð fyrir greiðslu orlofs- og desemberuppbóta til lífeyristaka. ÖBÍ fagna áformunum og aðgerðum sem stuðla að bættum kjörum lífeyristaka.

Markmið áformanna

Markmið frumvarpsins er annars vegar að tryggja áframhaldandi eingreiðslu í desember til tekjulægstu hópa örorku-, hlutaörorku-, elli- og endurhæfingarlífeyristaka og hins vegar að styrkja lagagrundvöll orlofs- og desemberuppbóta til lífeyrisþega, sem eru fyrrnefndir hópar auk sjúkra- og ellílífeyrisþega. Tekið er sérstakleg fram í áformunum að verið sé að tryggja greiðslur til fyrrgreindra hópa fyrir árið 2026, þó lögin gildi áfram þangað til annað verði ákveðið.

Í núgildandi lögum er ekki kveðið sérstaklega á um slíkar uppbætur heldur hafa þær verið ákveðnar árlega í reglugerð. Með áformunum er því lagt til að skýr heimild verði sett í lög um að ráðherra geti ákveðið greiðslu orlofs- og desemberuppbóta og sett nánari skilyrði um þær. Jafnframt er nauðsynlegt að lögfesta sérstakt ákvæði um eingreiðslu í desember árið 2026 þar sem ekki er heimilt að greiða hana án sérstakrar lagastoðar.

  • ÖBÍ leggur til að þessar eingreiðslur verði skattfrjálsar eins og þær hafa verið hingað til.

Orlofs- og desemberuppbót/greiðslur ákveðnar á hverju ári

Frá árinu 2020 hafa örorku-, hlutaörorku- og endurhæfingarlífeyristakar fengið, samkvæmt lögum um almannatryggingar, sérstaka eingreiðslu í desember til viðbótar við árlegu desemberuppbót. Ellilífeyrisþegum með fullan lífeyri var veitt sambærileg greiðslu árin 2024 og 2025. Hingað til hafa þessar orlofs- og desemberuppbót/greiðslur verið ákveðnar ár frá ári með sérstakri ákvörðun stjórnvalda.

Réttlætismál

Að mati ÖBÍ snýst fyrirhuguð lagasetningar um réttlæti á þann hátt að tryggja örorku-, hlutaörorku-, sjúkra- og endurhæfingar- og ellilífeyristökum með skýrum hætti orlofs- og desemberuppbætur á lífeyri. Hingað til hafa þessar greiðslur verið byggðar á ákvörðun sem hefur verið tekin á hverju hausti. ÖBÍ gerir þó athugasemdir við að samkvæmt áformunum eigi einungis að tryggja eingreiðslu í desember til tekjulægstu lífeyristakanna sem eru skráðir eru með lögheimili hér á landi 1. nóvember 2026. ÖBÍ og LEB gerðu bæði alvarlega athugasemd við sambærilegt ákvæði í umsögn um frumvarp um eingreiðslu (mál 236) á 157. löggjafarþingi . Sambærilegar eingreiðslur fyrri ára náðu einnig til lífeyristaka með lögheimili erlendis. Lífeyristakar með lögheimili erlendis fá einnig greiðslur samkvæmt þessum sömu lögum og hluti þeirra er í hópi tekjulægstu greiðsluþeganna.

Í áformunum er ekki hægt að greina hvernig útfæra á eingreiðsluna í desember. Má þá nefna lykilatriði svo sem hvort eingreiðslan verði skattskyld eða óskattskyld, hver upphæð hennar verður og hvernig eingreiðslan verður reiknuð út (áhrif tekna) til að nefna þau helstu.

Lokaorð

Með áformunum á að tryggja í sessi með lögum þessar sérstöku orlofs- og desemberuppbætur sem greiddar eru lífeyrisþegum í desember sem er til viðbótar eingreiðslunnar sem lífeyrisþegar fá í desember ár hvert. Mörgum spurningum er ósvarað varðandi áformaða útfærslu eingreiðslu í desember.

Ekkert um okkur án okkar!

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka

Sigríður Hanna Ingólfsdóttir
félagsráðgjafi ÖBÍ réttindasamtaka

Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka


Áform um lagasetningu – Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007
Mál nr. S-139/2026. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 10. ágúst 2026