AðgengiAlmannavarnirUmsögn

Áform um breytingu á lögum um samræmda neyðarsvörun

By 11. ágúst 2026ágúst 19th, 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök benda á að heimild til að afla viðkvæmra upplýsinga um heilsufar einstaklinga og stöðu þeirra innan almannatryggingakerfisins er mjög takmörkuð. Á sama tíma er fötluðu fólki sérstök hætta búin í hamförum og öðrum ógnandi aðstæðum.

Mikilvægt er að hægt sé að tilkynna neyðartilvik með mismunandi hætti enda ekki á færi allra að nota símann til þess. Stjórnvöld verða að sjá til þess að Neyðarlínan hafi aðgang að nýjustu samskiptatækni á hverjum tíma og að starfsfólk þjónustunnar sé þjálfað til að taka við öllum samtölum.

Í 112 Neyðarlínu-appinu geta einstaklingar forskráð persónulegar upplýsingar um sig, þar á meðal hvort þeir séu heyrnarlausir og þurfi túlk. Ekki er hægt að skrá aðrar upplýsingar sem þó geta skipt miklu máli að Neyðarlínan hafi hjá sér, eins og hvort viðkomandi noti hjálpar- eða lækningatæki. Sérstakar ráðstafanir þarf að gera ef flytja þarf einstakling í rafmagnshjólastól og ef einstaklingur er í öndunarvél á heimili getur hver mínúta skipt máli.

Túlkar á bakvakt hjá Neyðarlínunni eru ólaunaðir. Því fylgir mikil ábyrgð að túlka rétt aðstæður og þarfir fólks í neyð og því er með öllu óásættanlegt að stjórnvöld velti þeirri ábyrgð yfir á örfáa einstaklinga sem samvisku sinnar vegna verða að gefa kost á sér til þeirra starfa.

ÖBÍ leggur mikla áherslu á að heimildir Neyðarlínunnar verði skýrðar svo að tryggja megi öryggi allra einstaklinga án þess að skerða persónuverndarsjónarmið, að fleiri hópar geti skráð inn upplýsingar um sínar aðstæður hjá Neyðarlínunni og að túlkar fái greitt fyrir vinnu sína.

Ekkert um okkur án okkar.

Með vinsemd og virðingu,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ


Áform um breytingu á lögum um samræmda neyðarsvörun
Mál nr. S-144/2026. Almanna- og réttaröryggi. Dómsmálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 11. ágúst 2026