
ÖBÍ réttindasamtök fagna áformum stjórnvalda um að tryggja rétt handhafa stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða með breytingum sem koma til móts við þær áskoranir sem komið hafa upp við sjálfvirknivæðingu við gjaldheimtu á gjaldskyldum bílastæðum.
Stæðiskorthafar eru undanþegnir gjaldskyldu í öllum gjaldskyldum stæðum, sbr. 87. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, en hafa þurft að ganga eftir niðurfellingu eða endurgreiðslu gjaldkröfu við rekstraraðila sem beita myndavélakerfum sem greina ekki stæðiskort í bifreiðum við eftirlit. Án efa hefur fjöldi stæðiskorthafa greitt kröfu í heimabanka frekar en að standa í tíma- og orkufrekum samskiptum við innheimtufyrirtæki.
Samkvæmt áformum á að opna opinberar skrár um stæðiskorthafa sem staðfesta með einföldum hætti hvort viðkomandi sé með gilt stæðiskort eða ekki án þess að hætta sé á að viðkvæm persónuleg gögn fari milli kerfa. Það er lausn sem ÖBÍ hefur talað fyrir og er því fagnaðarefni að verði að veruleika.
Ekkert um okkur án okkar.
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Stefán Vilbergsson ÖBÍ
verkefnastjóri ÖBÍ
Áform um frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum nr. 77/2019
Mál nr. S-179/2026. Innviðaráðuneytið.
Umsögn ÖBí, 25. september 2026

