
© Seðlabanki Íslands
ÖBÍ réttindasamtök styðja framgang þessa mál af heilum hug. Nái þessi þingsályktunartillaga fram að ganga getur það valdið fjárhagslegum straumhvörfum í starfi margra almannaheillafélaga.
ÖBÍ réttindasamtök senda atvinnuveganefnd Alþingis umsögn varðandi tillögu til þingsályktunar um almannaheillasjóð. Að mati ÖBÍ er hér um mikilvægt mál að ræða fyrir almannaheillafélög en mörg þeirra eru aðilar að ÖBÍ réttindasamtökum eins og Blindrafélagið, Alzheimersamtökin, Átak félag fólks með þroskahömlun og fleiri.
Í þingsályktunartillögunni segir að Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að stofna sjóð, Almannaheillasjóð, sem fái framlög af fjárlögum fyrir hvert ár, sem samsvari heildarfjárhæð þeirra eigna sem hafa runnið í ríkissjóð úr dánarbúum án erfingja á næstliðnu ári. Markmið sjóðsins er að styðja við almannaheillafélög.
ÖBÍ styður framgang þessarar þingsályktunartillögu því ef hún gengur eftir, getur það gefið mörgum almannaheillafélögum tækifæri til að sækja um styrk frá þessum nýja sjóði. Langflest almannaheillafélög eru háð styrkjum frá einstaklingum og fyrirtækjum sem og með sölu varnings. Ef þessi tillaga gengur eftir, mun það styrkja fjárhagslegan grundvöll margra almannaheillafélaga.
Í mörgum okkar nágrannalöndum er að finna sambærilega almannaheillasjóði. Má þar nefna að í Noregi er að finna sjóð sem fær fjármögnun frá dánarbúum og kallast „Herrelös arv“. Í Svíþjóð er sambærilegur sjóður sem heitir „Almanna Arvsfonden“ sem hefur frá árinu 1928 stutt almannaheillafélög sem vinna í þágu barna, unglinga, eldri borgara og fatlaðs fólks. í Bretlandi rennur hluti slíkra dánarbúa til sjóðs sem heitir „Dormant Assets Scheme“ sem styður samfélagsverkefni.
ÖBÍ réttindasamtök styðja framgang þessa mál af heilum hug. Nái þessi þingsályktunartillaga fram að ganga getur það valdið fjárhagslegum straumhvörfum í starfi margra almannaheillafélaga.
Virðingafyllst,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Almannaheillasjóður
368. mál, þingsályktunartillaga.
Umsögn ÖBÍ, 17. mars 2026

