
Adobe Stock
ÖBÍ réttindasamtök hafa tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007.
ÖBÍ fagnar áformum og aðgerðum sem stuðla að bættum kjörum lífeyrisþega.
Markmið frumvarpsins er annars vegar að tryggja áframhaldandi eingreiðslu í desember til tekjulægstu hópa örorku-, hlutaörorku-, elli- og endurhæfingarlífeyrisþega og hins vegar að styrkja lagagrundvöll orlofs- og desemberuppbóta til lífeyrisþega, sem eru fyrrnefndir hópar auk sjúkra- og ellilífeyrisþega.
Í núgildandi lögum er ekki kveðið sérstaklega á um slíkar uppbætur heldur hafa þær verið ákveðnar árlega í reglugerð. Í frumvarpinu er lagt til að skýrari lagaheimild verði sett sem kveði á um að ráðherra geti ákveðið greiðslu orlofs- og desemberuppbótar og sett nánari skilyrði um þær. Jafnframt er talið nauðsynlegt að lögfesta sérstakt ákvæði um eingreiðslu í desember árið 2026 þar sem ekki er heimilt að greiða hana án sérstakrar lagastoðar. Þá er mikilvægt að lögfesta ákvæði um eingreiðslu til lífeyrisþega sem tryggir til framtíðar þennan stuðning til tekjulágra lífeyristaka.
ÖBÍ gerir alvarlega athugasemd við að ákvæðið nái einungis til lífeyristaka sem eru skráðir með lögheimili á Íslandi. Sambærilegar eingreiðslur fyrri ára náðu einnig til lífeyristakaa með lögheimili erlendis. Ætlunin með frumvarpinu er að ná til tekjulægstu greiðsluþeganna samkvæmt lögum nr. 100/2002, um almannatryggingar og lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð. Lífeyristakar með lögheimili erlendis fá einnig greiðslur samkvæmt þessum sömu lögum og hluti þeirra er í hópi tekjulægstu greiðsluþeganna.
Samkvæmt frumvarpinu tekur eingreiðslan ekki til einstaklinga sem fá greitt ráðstöfunarfé, sem heimilt er að greiða þegar örorku- eða ellilífeyrisgreiðslur falla niður vegna dvalar á stofnun hér á landi, sbr. 38. og 39. gr. laga um almannatryggingar. Ráðstöfunarfé er tekjutengt og á því einungis tekjulægsti hópur rétt á þessum greiðslum, en hámarksupphæð ráðstöfunarfjár er 109.746 kr. á mánuði fyrir skatt. Sem fyrr segir er markmið frumvarpsins að tryggja tekjulægstu greiðsluþegunum eingreiðsluna. Engin málefnaleg rök eru færð fyrir því að tryggja eingreiðsluna ekki tekjulægstu greiðsluþegunum úr hópi þeirra sem hafa lögheimili utan Íslands eða þeirra sem fá greitt ráðstöfunarfé vegna dvalar á stofnunum. Kann frumvarpið að þessu leyti að fela í sér mismunun á grundvelli búsetu í andstöðu við jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Hvað varðar þá sem búsettir eru á EES-svæðinu kann það einnig að fara gegn ákvæðum reglugerðar (EB) nr. 883/2004. Reglugerðin gengur út frá því að þeim sem njóta tekna úr almannatryggingakerfum sé frjáls för innan EES-svæðisins og gerir kröfu um að jafnræðis sé gætt.
Í frumvarpinu er fjárhæð eingreiðslu sú sama, 73.390 kr., og í frumvarpi sem samþykkt var á Alþingi í desember 2025 (mál 236) um sérstaka eingreiðslu í desember 2025. Við ákvörðun fjárhæðar eingreiðslunnar í frumvarpinu í ofangreindu þingmáli var prósentuhækkun lífeyris í fjárlögum fyrir árið 2025 bætt við fjárhæð eingreiðslu ársins 2024. Því skýtur skökku við að fjárhæðin frá árinu 2025 fái ekki prósentuhækkun fjárlaga fyrir árið 2026, þ.e. hækkun um 5,2% í 77.206 kr. Þá er gerð athugasemd við að fjárhæð almenns frítekjumarks fyrir útreikning eingreiðslunnar sé óbreytt frá frumvarpinu sem lagt var fram í nóvember 2025. Almennt frítekjumark örorkulífeyris fékk sömu hækkun (5,2%) frá 1. janúar 2026 og hækkaði úr 1.200.000 kr. í 1.262.400 kr. og það sama ætti að eiga við um almennt frítekjumark við útreikning eingreiðslunnar til að gæta samræmis.
ÖBÍ fagnar því að eingreiðslan er óskattskyld, eins og eingreiðslur fyrri ára.
Að lokum telur ÖBÍ að æskilegra væri að ákvæði um eingreiðslu yrði tekið upp í meginmál laganna í stað þess að vera til bráðabirgða.
Ekkert um okkur án okkar!
Virðingarfyllst,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Sigríður Hanna Ingólfsdóttir
félagsráðgjafi ÖBÍ réttindasamtaka
Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Almannatryggingar (eingreiðsla og orlofs- og desemberuppbót) | Ferill þingmáls | Alþingi
205. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 28. október 2026

