Skip to main content
Umsögn

Almenn hegningarlög (barnaníðsefni, hatursorðræða, mismunun o.fl.). 389. mál.

By 14. mars 2022No Comments

Nefndasvið
Allsherjar- og menntamálanefnd
Austurstræti 8-12
150 Reykjavík

Reykjavík, 14. mars 2022

Efni: Umsögn Öryrkjabandalags Íslands við frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (barnaníðsefni, hatursorðræða, mismunun o.fl.). 152. löggjafarþing 202-2022. Þingskjal 558 – 389. mál.

Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) fagnar framlögðu frumvarpi og þeim breytingum sem þar koma fram. Það er afar mikilvægt að fötluðu fólki sé veitt sama refsivernd og öðrum þar sem vitað er að fatlað fólk er sérstaklega berskjaldað gagnvart hatursorðræðu, hatursglæpum og mismunun margskonar.

Það er því ánægjulegt að sjá að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sé hafður til hliðsjónar við frumvarpsgerð þessa enda í samræmi við þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist.

Ekkert um okkur, án okkar!

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ
Alma Ýr Ingólfsdóttir, lögfræðingur, LL.M


Nánari upplýsingar um málið og feril þess