RéttarkerfiUmsögn

Almenn hegningarlög (öryggisráðstafanir)

By 3. febrúar 2026júní 2nd, 2026No Comments
Varðstofa í fangelsinu Hólmsheiði

ÖBÍ telur líklegt að fjölmargir þeirra einstaklinga sem munu verða fyrir áhrifum af frumvarpinu, Almenn hegningarlög (öryggisráðstafanir), verði það að lögum, geti talist til fatlaðra einstaklinga. ÖBÍ leggur ríka áherslu á mikilvægi þess að á öllum stigum málsins verði horft til samningsins Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF). Ástæða þess að ráðist var í gerð samningsins á vettvangi Sameinuðu þjóðanna var sú staðreynd að fatlað fólk nýtur síður réttinda sinna, þ.m.t. grundvallar mannréttinda, en fólk almennt. Samningnum er því ætlað að stuðla að því að jafna þann mun.

Samkvæmt 1. mgr. 14. gr. SRFF skulu aðildarríkin tryggja að fatlað fólk, til jafns við aðra, njóti réttar til frelsis og persónulegs öryggis og sé ekki svipt frelsi sínu með ólögmætum hætti eða geðþóttaákvörðunum og að frelsissvipting í hvaða mynd sem er, skuli fötlun ekki undir neinum kringumstæðum réttlæta frelsissviptingu.

Samkvæmt 2. mgr. skulu aðildarríkin tryggja fötluðu fólki sem svipt er frelsi sínu á einhvern hátt mannréttindi til jafns við aðra í samræmi við alþjóðleg mannréttindalög og tryggja að meðferð þess samræmist markmiðum og meginreglum samningsins, meðal annars með því að tryggja því viðeigandi aðlögun.

ÖBÍ telur jákvæðar breytingar hafa verið gerðar á frumvarpinu frá því að það var birt í Samráðsgátt stjórnvalda. Á það einkum við um aukna áherslu á meðalhóf og hlutverk tilsjónarmanna.

ÖBÍ er reiðubúið til samráðs og samvinnu á öllum stigum þessa máls. Minnt er á að samkvæmt 3. mgr. 4. gr., SRFF skulu aðildarríkin, þegar þau undirbúa og beita löggjöf sinni og stefnu samningnum til framkvæmda og vinna að ákvarðanatöku um málefni fatlaðs fólks, hafa náið samráð og tryggja virka þátttöku fatlaðs fólks. Áskilinn er réttur til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.

Ekkert um okkur án okkar!

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ

Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ


Almenn hegningarlög (öryggisráðstafanir)
313. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 3. febrúar 2026


ÖBÍ réttindasamtök eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks í hverskyns hagsmunamálum.