Málefni barnaMenntamálUmsögn

Bráðabirgðaákvæði um notkun talnakvarða í námsmati við lok grunnskóla skólaárið 2026-2027

By 21. október 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök þakka fyrir tækifærið til að koma á framfæri athugasemdum við drög að bráðabirgðaákvæði um notkun talnakvarða í námsmati við lok grunnskóla skólaárið 2026–2027. Samkvæmt tillögunni er lagt til að við brautskráningu úr grunnskóla verði notaður talnakvarði frá 4–10 í stað núverandi bókstafakvarða og matsviðmiða. Markmið breytingarinnar er samkvæmt kynningu málsins að auka skýrleika, samræmi og jafnræði í námsmati.

Umsögn 

ÖBÍ tekur undir mikilvægi þess að námsmat sé gagnsætt, réttlátt og veiti nemendum, foreldrum og skólum raunhæfar upplýsingar um námsframvindu. Samtökin telja hins vegar að ekki hafi verið sýnt fram á að þær breytingar sem lagðar eru til muni leysa þau álitaefni sem hafa verið til umræðu varðandi námsmat í grunnskólum undanfarin ár.

Almennar athugasemdir

Námsmat gegnir tvíþættu hlutverki. Annars vegar á það að meta þá þekkingu, leikni og hæfni sem nemandi hefur tileinkað sér og hins vegar að styðja við nám, framfarir og farsæld með skýrri endurgjöf. Mikilvægt er að breytingar á námsmati taki mið af báðum þessum hlutverkum.

ÖBÍ telur að óljóst sé hvernig fyrirhuguð breyting úr bókstafakvarða yfir í talnakvarða muni í sjálfu sér bæta núverandi fyrirkomulag. Breytingin virðist fyrst og fremst fela í sér breytingu á framsetningu matsins en ekki efnislega endurskoðun á þeim áskorunum sem skólasamfélagið hefur bent á, þar á meðal skorti á samræmi milli skóla, mismunandi túlkun matsviðmiða og þörf á skýrari upplýsingagjöf til nemenda og foreldra.

Samtökin hafa jafnframt áhyggjur af því að hér sé um bráðabirgðaákvæði að ræða sem breytir framkvæmd námsmats til skemmri tíma á sama tíma og unnið er að frekari endurskoðun kerfisins. Breytingar á námsmati hafa veruleg áhrif á réttindi barna, námsframvindu þeirra og möguleika til áframhaldandi náms og því er nauðsynlegt að þær byggi á vönduðum undirbúningi, skýrum markmiðum og víðtæku samráði.

Skortur á skýrum matsviðmiðum

Samkvæmt tillögunni merkir einkunnin 7 að hæfniviðmiðum hafi verið náð, einkunnir 5 og 6 að nemandi sé á leið að því marki og einkunnir 8–10 að hæfni nemandans sýni aukna dýpt, öryggi, sjálfstæði og beitingu. ÖBÍ telur að skortur á skýrari viðmiðum um muninn á einkunnum 8, 9 og 10 geti aukið hættu á huglægu mati og mismunandi framkvæmd milli skóla. Ef markmið breytingarinnar er aukið samræmi þarf að liggja skýrt fyrir hvaða viðmið verði notuð og hvernig tryggja eigi sambærilega framkvæmd milli skóla. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir nemendur sem þurfa sérstakan stuðning, þar á meðal fatlaða nemendur, sem eiga rétt á gagnsæju, fyrirsjáanlegu og sanngjörnu námsmati.

Mikilvægi einstaklingsbundinnar endurgjafar

ÖBÍ hefur áhyggjur af því að aukin áhersla á talnaeinkunnir geti dregið úr vægi einstaklingsbundinnar og lýsandi endurgjafar. Fyrir fatlaða nemendur er slík endurgjöf oft lykilforsenda þess að þeir geti áttað sig á eigin námsframvindu, styrkleikum og þeim þáttum sem þarfnast frekari stuðnings. Ein töluleg einkunn veitir takmarkaðar upplýsingar um þessa þætti og getur því ekki komið í stað markvissrar, einstaklingsmiðaðrar endurgjafar. ÖBÍ telur mikilvægt að tryggt verði að talnaeinkunnir komi ekki í stað lýsandi endurgjafar heldur verði eftir atvikum viðbót við hana.

Hraði innleiðingar og skortur á áhrifamati

Fram hafa komið áhyggjur af hraða innleiðingar breytinganna og skorti á undirbúningi innan skólakerfisins. ÖBÍ telur mikilvægt að breytingar af þessu tagi séu innleiddar með nægum fyrirvara og að kennarar, skólastjórnendur, nemendur og foreldrar fái skýrar upplýsingar um framkvæmd þeirra. Samtökin telja jafnframt að skortur sé á greiningu á áhrifum tillögunnar á fatlaða nemendur og aðra nemendur með sérstakar stuðningsþarfir.

Í ljósi skuldbindinga Íslands samkvæmt Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem báðir hafa verið lögfestir hér á landi, hefði verið eðlilegt að fyrir lægi sérstakt mat á áhrifum tillögunnar á þennan hóp áður en breytingarnar taka gildi.

Hætta á aukinni samanburðarhyggju

ÖBÍ bendir á að endurkoma talnaeinkunna geti aukið áherslu á samanburð milli nemenda og ýtt undir árangursmiðaða nálgun þar sem einkunnin sjálf fær aukið vægi.

Fyrir fatlaða nemendur getur slíkt haft neikvæð áhrif ef minna vægi er lagt á framfarir einstaklingsins miðað við eigin forsendur og meira á samanburð við aðra nemendur. Menntun án aðgreiningar byggir á því að viðurkenna fjölbreyttar þarfir barna og meta árangur með hliðsjón af ólíkum aðstæðum og stuðningsþörfum.

Óljóst hvort markmið um aukið samræmi náist

Þrátt fyrir markmið um aukið samræmi virðist áfram gert ráð fyrir að skólar hafi verulegt svigrúm til að útfæra vægi einstakra þátta námsmats. ÖBÍ telur því óljóst hvernig breytingin muni í reynd tryggja meira samræmi milli skóla en nú er. Án skýrari landsviðmiða er hætta á að nemendur búi áfram við mismunandi framkvæmd námsmats eftir því hvaða skóla þeir sækja.

Réttindi fatlaðra barna

ÖBÍ leggur sérstaka áherslu á að allar breytingar á námsmati verði metnar í ljósi réttinda fatlaðra barna til menntunar án aðgreiningar, jafnræðis og virkrar þátttöku í skólastarfi.

Fötluð börn eiga rétt á að:

• námsmat sé aðgengilegt og skiljanlegt,

• mat taki mið af viðeigandi stuðningi og aðlögun,

• framfarir þeirra séu metnar á sanngjarnan hátt,

• þau fái skýra og einstaklingsbundna endurgjöf,

• breytingar á námsmati leiði ekki til skerðingar á tækifærum nemenda til áframhaldandi náms eða þátttöku í samfélaginu.

Í drögunum er vísað til áframhaldandi fyrirkomulags fyrir nemendur sem stunda nám samkvæmt einstaklingsnámskrá. ÖBÍ telur nauðsynlegt að skýrt verði hvernig fyrirhugaðar breytingar á námsmati og notkun talnakvarða hafa áhrif á þennan hóp nemenda, hvaða reglur gilda um vitnisburð þeirra og hvernig tryggt verður að námsmat endurspegli með sanngjörnum hætti hæfni, framfarir og stuðningsþarfir fatlaðra barna. Sérstaklega þarf að liggja fyrir hvernig fyrirkomulagið styður við rétt þeirra til jafnræðis í námi og jafns aðgangs að framhaldsskólastigi í samræmi við meginreglur um menntun án aðgreiningar.

ÖBÍ telur enn fremur mikilvægt að metið verði sérstaklega hvort breytingar á námsmati geti haft áhrif á möguleika fatlaðra nemenda til að uppfylla skilyrði fyrir áframhaldandi námi á 2. hæfniþrepi í framhaldsskóla og hvort tryggt sé að stuðningsþarfir og aðlögun sem nemendur hafa notið í grunnskóla endurspeglist með sanngjörnum hætti í lokamati þeirra.

Niðurstaða

ÖBÍ réttindasamtök telja ekki unnt að styðja tillöguna í núverandi mynd. Samtökin telja að ekki hafi verið sýnt fram á hvernig breytingin muni bæta námsmat eða stuðla að auknu jafnræði innan skólakerfisins. Jafnframt skortir mat á áhrifum tillögunnar á fatlaða nemendur og aðra nemendur sem þurfa sérstakan stuðning í námi. ÖBÍ telur sérstaklega brýnt að skýrt verði hvernig nýtt fyrirkomulag muni hafa áhrif á nemendur sem stunda nám samkvæmt einstaklingsnámskrá, hvernig vitnisburður þeirra verður útfærður og hvernig tryggt verður að námsmat taki mið af stuðningsþörfum þeirra og réttindum til menntunar án aðgreiningar.

ÖBÍ leggur því til að:

1.

Framkvæmt verði sérstakt mat á áhrifum tillögunnar á fatlaða nemendur og aðra nemendur með stuðningsþarfir.

2.

Tryggt verði að talnaeinkunnir komi ekki í stað einstaklingsbundinnar og lýsandi endurgjafar.

3.

Sett verði fram skýrari og samræmd landsviðmið um túlkun einkunna og framkvæmd námsmats.

4.

Skýrt verði hvernig námsmati og vitnisburði nemenda samkvæmt einstaklingsnámskrá verður háttað samkvæmt hinu nýja fyrirkomulagi.

5.

Metið verði sérstaklega hvort breytingarnar geti haft áhrif á aðgengi fatlaðra nemenda að framhaldsskólanámi og námsleiðum á 2. hæfniþrepi.

6.

Fram fari frekara samráð við samtök fatlaðs fólks, foreldra, kennara og aðra hagsmunaaðila áður en breytingarnar taka gildi.

7.

Tryggt verði að námsmat styðji við farsæld, þátttöku og sjálfsákvörðun fatlaðra barna í samræmi við mannréttindaskuldbindingar íslenska ríkisins.

ÖBÍ réttindasamtök lýsa sig reiðubúin til frekara samráðs um áframhaldandi þróun námsmats og menntakerfis sem byggir á jafnrétti, aðgengi og menntun án aðgreiningar. Samtökin telja mikilvægt að fatlaðir nemendur, fjölskyldur þeirra og hagsmunasamtök þeirra taki virkan þátt í mótun þeirra breytinga sem hafa áhrif á stöðu þeirra, réttindi og menntun.

Ekkert um okkur án okkar!

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka


Bráðabirgðaákvæði um notkun talnakvarða í námsmati við lok grunnskóla skólaárið 2026-2027 | Samráðsgátt | Mennta- og barnamálaráðuneytið | Mál: S-193/2026
Umsögn ÖBÍ, 21. október 2026


[Leikskólar, grunnskólar, önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála]