
ÖBÍ réttindasamtök fagna frumvarpi til að draga úr lyfjaskorti og styður framgang þess. Lyf eru mörgu fötluðu fólki og endurhæfingar- og örokulífeyristökum lífsnauðsynleg og skortur á þeim því grafalvarlegt mál.
Verði frumvarpið að lögum, mun geta Lyfjastofnunar til að takast á við lyfjaskort aukast til muna. Eins og fram kemur í greinargerð frumvarpsins er „skortur á lyfjum vaxandi ógn við lýðheilsu sem grefur undan rétti sjúklinga til að fá aðgang að viðeigandi læknismeðferð.“ Því er nauðsynlegt að Lyfjastofnun hafi allar heimildir til að bregðast við lyfjaskorti, til að lágmarka áhrif skorts á heilsu fólk. ÖBÍ styður allar aðgerðir til að draga úr lyfjaskorti og þar með lágmarka þau áhrif sem lyfjaskortur getur haft í för með sér.
1.
Stýring og/eða takmörkun á afgreiðslu og afhendingu lyfja við ákveðna sjúklingahópa
ÖBÍ styður framkomnar tillögur um viðbrögð við lyfjaskorti, sem Lyfjastofnun er heimilt að grípa til, og eru tilgreindar með fjórum leiðum. Eftirfarandi tillögu styður ÖBÍ sérstaklega, c. lið 32. gr. a. þar sem segir: „Lyfjastofnun er heimilt að stýra og/eða takmarka afgreiðslu og afhendingu lyfja við ákveðna sjúklingahópa, ákveðna aldurshópa eða sjúkdómsástand sjúklinga samkvæmt áhættumati, […]“
2.
Greiðsluþátttaka í lyfjum
Í frumvarpinu er fjallað um ákvörðun um greiðsluþáttttöku á lyfjum. ÖBÍ styður að ferli um greiðsluþátttöku verði einfaldað og færð til Sjúkratryggingarstofnunar Íslands (SÍ). Tilgangur þessarar breytingar er að einfalda alla stjórnsýslu varðandi greiðsluþátttöku lyfja og koma í veg fyrir tvíverknað við vinnslu greiðsluþátttöku hjá Sjúkratryggingastofnun og Lyfjastofnun. Þó að ÖBÍ styður þessa breytingu, hvetja samtökin að vandað verði til verka.
ÖBÍ fagnar þeim áformum um að heimilt verði að veita einstaklingum greiðsluþátttöku í lyfjum sem hafa ekki markaðsleyfi hér á landi eða svokölluð undanþágulyf, sem hingað til hafa verið án greiðsluþátttöku. Að mati ÖBÍ styrkir þessi aðgerð stöðu stórs hóps fólks aðgengi að nauðsynlegum lyfjum.
ÖBÍ styður það að tryggja eigi sanngjart lyfjaverð hér á landi og að miðað verði við verðlagningu lyfja hjá öðrum Norðurlöndum og EES-ríkjum.
3.
Neyðarbirgðir lyfja
ÖBÍ styður ákvæði í frumvarpinu um 8 vikna neyðarbirgðir lyfja. Slíkar neyðarbirgðir geta aukið lyfjaöryggi, dregið úr áhrifum lyfjaskorts og tryggt betur samfellu í meðferð þeirra einstaklinga sem eru háðir reglulegri lyfjanotkun. Þetta á sérstaklega við um fatlað fólk, langveika og aðra hópa sem geta orðið fyrir alvarlegum afleiðingum ef aðgengi að nauðsynlegum lyfjum rofnar.
4.
Aukið hlutverk lyfjafræðinga
ÖBÍ styður þá breytingu þar sem lyfjafræðingum verði falið meiri hlutverk og ábyrgð, m.a. að ávísa undanþágulyfjum í sérstökum tilvikum og að auki ávísa bóluefnum sem notuð eru til bólusetningar í lyfjabúðum og öðrum lyfjum sem teljast nauðsynleg í tengslum við hana.
5.
Réttur einstaklinga til upplýsinga
Í frumvarpinu er mikilvægur réttur einstaklings tryggður um rétt hans til að fá upplýsingar um hverjir hafa aflað upplýsinga um hann úr lyfjaávísanagátt, þ.m.t. hvar og hvenær upplýsinga var aflað og í hvaða tilgangi.
Lokaorð
Ítrekaður er stuðningur ÖBÍ réttindasamtaka við framkomið frumvarp frá heilbrigðisráðherra.
ÖBÍ er reiðubúið til samráðs, ráðgjafar og samvinnu á öllum stigum málsins.
Ekkert um okkur án okkar.
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Breyting á ýmsum lögum vegna viðbragða við lyfjaskorti o.fl. | Ferill þingmáls | Alþingi
232. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 10. nóvember 2026

