
Frá málþinginu „Þetta er allt í vinnslu … húsnæðistækifæri ungs fatlaðs fólks“ 7. maí 2025. Mynd: ÖBÍ / Ruth Ásgeirsdóttir
Nýlega var sett í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til laga um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána (varanleg heimild).
ÖBÍ fagnar framkomnu frumvarpi og að það takmarki heimild greiðslu séreignarsparnaðar inná húsnæðislán til tíu ára, og að ákveðið verði að þessum tíu árum loknum hvort halda skuli áfram með framkvæmd aðgerðarinnar.
Að mati ÖBÍ hefur greiðsla séreignasparnaðar inná húsnæðislán einkum nýst tekjuhærri hópum frekar en meðal- og lágtekjuhópum. Frumvarpið breytir þeirri staðreynd ekki. Aðgerðin nýtist ekki öllum lífeyristökum í ljósi þess að þeir greiða ekki allir í lífeyrissjóði. Aftur á móti er margt fatlað fólk á vinnumarkaði og mörg þeirra tilheyra lágtekjuhópum sem þýðir að sá hópur nýtir úrrræði séreignasparnaðar í minna mæli en þau sem eru tekjuhærri.
Í kafla 6.7. frumvarpsins um mat á áhrifum á jafnrétti kynjanna kemur fram að af heildarfjárhæðinni sem nýtt er af séreignarsparnaði á höfuðstól þá nýta karlar 57% og konur 43% og munar 79 þ.kr. á ári á milli meðalfjárhæðar sem karlar nýta og þeirrar sem konur nýta að jafnaði. Í því ljósi er vert að árétta áhrif laganna á jafnrétti annarra hópa t.a.m. fatlaðs fólks og tækifæri þeirra til nýta úrræðið til jafns við ófatlað fólk.
Fatlað fólk á mun erfiðara með að bæta hag sinn, standast lánshæfismat og eignast húsnæði. Samkvæmt rannsókn Vörðu frá desember 2023 um stöðu fatlaðs fólks kemur fram að einungis 54% fatlaðs fólks býr í eigin húsnæði.
Einnig er vert að benda á skýrslu húsnæðishóps ÖBÍ um húsnæðismál fatlaðs fólks frá nóvember 2023 , en þar kemur fram að 70% fatlaðs fólks sem býr í eigin húsnæði eignaðist húsnæðið sitt fyrir örorkumat.
Í þessu sambandi má benda á að atvinnuþátttaka öryrkja mun aukast í ljósi gildistöku nýs almannatryggingakerfis frá 1. september sl., en þar mun hópur öryrkja vera metinn með svokallaðan hlutaörorkulífeyri, sem á að gera þeim kleift að fara á vinnumarkað. Greiðslur þessa hóps nemur 82% af örorkulífeyri og getur hópurinn haft tekjur upp að 350.000 án þess að þær skerðist. Eftirfarandi dæmi sýnir hvernig greiðslur í séreignasparnað geti nýst einstaklingi sem er á hlutaörorkulífeyri og á vinnumarkaði.
| Tekjur samtals | á mánuði |
| Greiðslur frá Tryggingastofnun | 425.838 kr. |
| Tekjur frá öðrum | 305.500 kr. |
| Fjármagnstekjur samanteknar | 0 kr. |
| Tekjur samtals | 731.338 kr. |
| Frádregin staðgreiðsla | 172.965 kr. |
| Frádreginn fjármagnstekjuskattur | 0 kr. |
| Frádregnir skattar samtals | 172.965 kr. |
| Samtals ráðstöfunartekjur eftir skatt | 558.373 kr. |
Ef viðkomandi leggur inn í séreignasparnað (2%) getur það numið 6.100 kr. á mánuði eða 73.200 kr. á ári. Af þeirri upphæð getur viðkomandi lagt hluta inná höfuðstól húsnæðisláns.
Ráðstöfun séreignasparnaðar inná höfuðstól húsnæðislána hefur verið skattfrjáls sem þýðir að ríkið og sveitarfélög hafa misst varanlega framtíðartekjur. Sú staðreynd að framtíðartekjur til ríkis og sveitarfélaga séu skertar með veitingu skattaafsláttar til tekjuhás fólks til að greiða niður húsnæðislán gerir það að verkum að í framtíðinni kemur til niðurskurðar hjá ríki og sveitarfélögum til að mæta þessari tekjuskerðingu. Af þessu hefur ÖBÍ áhyggjur í ljósi þess að niðurskurðurinn muni bitna harkalega á velferðarkerfinu.
ÖBÍ tekur fram að ekki er um varalega heimild að ræða, en samkvæmt lögunum er rétthöfum séreignarsparnaðar heimilt að nýta viðbótariðgjald til greiðslu inná höfuðstól lána í samanlagt tíu ár.
ÖBÍ réttindasamtök eru sem endranær reiðubúin að fylgja eftir umsögn sinni og óska eftir að eiga samtal og samvinnu við stjórnvöld og aðra hagaðila um frekari úrvinnslu frumvarpsins. Þá áskilja samtökin sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.
Virðingarfyllst,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ réttindasamtaka
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Drög að frumvarpi til laga um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána (varanleg heimild)
Mál nr. S-34/2026. Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 20. febrúar 2026
ÖBÍ réttindasamtök eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks í hverskyns hagsmunamálum.

