AlmannatryggingarAtvinnumálHeilbrigðismálUmsögn

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um almannatryggingar (grunnmat, sjúkradagpeningar o.fl.)

By 19. nóvember 2026No Comments

„ÖBÍ getur að svo stöddu ekki stutt við meginefni frumvarpsdraganna að óbreyttu og óskar eftir því að ráðuneytið fari varlega í breytingar sem kunna að hafa óafturkræfar og alvarlegar afleiðingar.“

ÖBÍ réttindasamtök telja það jákvætt skref að lagt sé fram frumvarp sem miðar að því að bæta úr annmörkum sem komið hafa í ljós við framkvæmd breytinganna á lögum um almannatryggingar sem tóku gildi í september 2025. ÖBÍ leggur áherslu á að horft sé til þess hvaða áhrif breytingarnar hafa á réttindi og afkomu fólks sem reiðir sig á almannatryggingar. Eftirfarandi athugasemdir og eða atriði telur ÖBÍ að þurfi að skýra betur og/eða endurskoða.

1.

Nýtt grunnmat

Eitt af meginefni frumvarpsdraganna er að innleiða grunnmat sem forsendu fyrir sjúkra- og endurhæfingargreiðslum. Ef grunnmat er gert að forsendu greiðslna þarf að liggja skýrt fyrir hvaða viðmið ráða niðurstöðu þess og hvernig matið fer fram. Ekki liggja fyrir drög að grunnmatinu og eru takmarðar upplýsingar að finna um það í frumvarpsdrögunum aðrar en þær að matið eigi að byggja á alþjóðlegu flokkunarkerfi (ICF). Þá er grunnmatinu ætlað að byggja á fyrirliggjandi gögnum og sjálfsmati umsækjenda. ÖBÍ leggur áherslu á að mjög mikilvægt er að slíkt mat lengi ekki biðtíma umsækjanda eftir sjúkra- og endurhæfingargreiðslum og/eða verði þess valdandi að umsækjendur verði tekjulausir á meðan beðið er eftir niðurstöðu grunnmats, eins og raunin var við innleiðingu á samþættu sérfræðimati eftir gildistöku þess 1. september 2025.

Í frumvarpsdrögunum er lagt til að niðurstaða grunnmats gildi í allt að 12 mánuði frá niðurstöðu. Aftur á móti kemur ekki fram hver lágmarksgildistími matsins verður og því óljóst hvort 12 mánaða gildistími sé meginregla eða hvort gildistíminn geti verið styttri.

2.

Stytting endurhæfingartímabils í 36 mánuði

Samkvæmt gildandi lögum getur hámarkstími sjúkra- og endurhæfingargreiðslna orðið allt að 60 mánuðir með heimild til framlengingar um allt að 24 mánuði (alls allt að 7 ár). Í 1. mgr. 71. gr. frumvarpsdraganna er samanlagður greiðslutími sjúkra- og endurhæfingargreiðslna takmarkaður við 36 mánuði (þrjú ár). Þegar núverandi hámarkstími var ákveðinn með lögum nr. 104/2024 voru svohljóðandi skýringar m.a. gefnar:

„Í skýrslu samráðshóps um breytt framfærslukerfi almannatrygginga frá árinu 2019 kemur m.a. fram að vísbendingar séu um að í einhverjum tilvikum hafi örorka fólks verið metin of snemma og örorkulífeyrir samkvæmt lögum um almannatryggingar ákvarðaður áður en ástand viðkomandi var orðið stöðugt. Er þar verið að vísa til fólks í mjög viðkvæmri stöðu vegna fjölþætts vanda, sem getur þurft frekari meðferðir eða endurhæfingu til að stuðla að endurkomu á vinnumarkað. Hér getur einkum verið um að ræða ungt fólk sem á við geðraskanir að stríða en það þykir sérstaklega mikilvægt að reyna til þrautar að styðja það til virkrar þátttöku á vinnumarkaði en þó nokkurn tíma getur tekið að ná því jafnvægi sem að er stefnt svo að atvinnuþátttaka verði möguleg.“

Að mati ÖBÍ er stytting endurhæfingartímabilsins of mikil og í ósamræmi við þær ástæður sem lágu til grundvallar á lengingu á endurhæfingartímabilinu. ÖBÍ telur þær ástæður eiga enn við í dag. Að auki bendir ÖBÍ á að sumir hópar hafa þörf fyrir lengri endurhæfingu en aðrir og við gerð frumvarpsins þarf að taka tillit til þess. Að auki er mismunandi hve mikinn atvinnutengdan veikindarétt fólk á sem það getur nýtt áður en það sækir um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur.

Til viðbótar má benda á að í drögum að Hvítbók um endurhæfingarþjónustu sem heilbrigðisráðuneytið kynnti fyrr í haust var lögð áhersla á að endurhæfing skuli byggja á einstaklingsbundnu mati, samfelldri þjónustu og réttri þjónustu eftir þörfum einstaklingsins og í þessu sambandi votu tímamörk endurhæfingar ekki nefnd sérstaklega.

Mesta áhættan með styttingu er að greiðslum ljúki áður en fólk hefur annað hvort náð vinnufærni og bata eða fengið samþykki fyrir örorkulífeyri eða hlutaörorkulífeyri og hafi því enga framfærslu. Það er ekki hægt að líta framhjá þeirri staðreynd að einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu verða að eiga möguleika á framlengingu þar til fyrirséð er hvað tekur við. Samkvæmt gögnum Tryggingastofnunar (TR) voru árið 2026 um 17,4% með sjúkra- og endurhæfingargreiðslur lengur en 36 mánuði. Að mati ÖBÍ er rangt að líta svo á að um sé að ræða óverulegan hluta og ítrekar nauðsyn þess að þörfum þeirra verði mætt svo koma megi í veg fyrir alvarlegar og óafturkræfar afleiðingar.

ÖBÍ leggur til að við frumvarpið verði bætt við ákvæði um að heimilt verði að framlengja hámarkstímabilið um 24 mánuði í undantekningartilvikum.

Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að í gögnum TR séu skýrar vísbendingar um að lenging hámarkstíma endurhæfingarlífeyris og sjúkra- og endurhæfingargreiðslna geti leitt til lengri endurhæfingar og að fjöldi þeirra sem eru lengur en þrjú til fjögur ár í endurhæfingu hafi vaxið. Stór hluti synjana vegna umsókna um örorkulífeyri sem koma inn á borð ÖBÍ byggja á þeim forsendum TR að endurhæfing sé ekki fullreynd, jafnvel eftir margra ára endurhæfingu. Ósjaldan kemur fram í læknisvottorði að endurhæfing sé fullreynd en þrátt fyrir það eru synjanirnar fjölmargar. Viðkomandi umsækjendur komast því ekki í samþætt sérfræðimat og þurfa að halda áfram í endurhæfingu jafnvel þó takmörkuð úrræði séu fyrir hendi sem umsækjendur geta mögulega nýtt. Af því sögðu telur ÖBÍ mjög mikilvægt að gengið sé út frá því að umsækjendur um örorkulífeyri fái að fara í samþætt sérfræðimat eftir að greiðslutímabili sjúkra- og/eða endurhæfingargreiðslna lýkur og að í ákveðnum tilvikum að umsóknum þeirra verði ekki synjað á grundvelli þess að endurhæfing sé ekki fullreynd.

Verulegur skortur er á tölulegum upplýsingum um fjölda þeirra sem fá synjun um örorkulífeyri á þeim forsendum að endurhæfing sé ekki fullreynd.

3.

Aðgreining sjúkra- og endurhæfingargreiðslna

Frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að aðskilja sjúkra- og endurhæfingargreiðslur. Sjúkragreiðslur verða tengdar viðurkenndri heilbrigðismeðferð en endurhæfingargreiðslur virkri þátttöku samkvæmt starfstengdri endurhæfingaráætlun. Þá verði samkvæmt drögunum og skýringum einungis heimilt að líta á vinnu eða nám sem lið í endurhæfingu en ekki heilbrigðismeðferðum. Breytingin er til þess fallin að þrengja möguleika fólks sem ræður við takmarkað nám eða starf meðan það er enn í meðferð.

Gert er ráð fyrir að heimilt verði að óska eftir nýju grunnmati til að fara á milli sjúkra- og endurhæfingargreiðslna innan gildistíma grunnmatsins. Um er að ræða heimildarákvæði sem byggir á mati TR á þörf fyrir nýtt grunnmat. Þetta gerir einstaklingi sem fær synjun á beiðni um nýtt grunnmat ómögulegt að færast á milli greiðslna. Mikilvægt er að einstaklingum sé gert auðvelt að fara á milli þessara tveggja greiðslna, eftir því sem við á og aðstæður þeirra breytast, án þess að fyrst þurfi að koma til heimild TR fyrir nýju grunnmati.

Gerð er athugasemd við að greiðslur skuli falla niður þegar þjónustu hjá einum þjónustuaðila lýkur innan gildistíma grunnmatsins án þess að þjónusta annars þjónustuaðila taki við. Slíkt rof á þjónustu getur ekki verið á ábyrgð þess sem reiðir sig greiðslurnar ef hann fær engu um það ráðið að þjónusta annars þjónustuaðila taki við og að rof verði á samfellu þjónustu. ÖBÍ ítrekar það að hinu nýja örorkulífeyriskerfi var ætlað að koma í veg fyrir framfærsluleysi eða greiðslurof og auka samfellu í þjónustu.

4.

Nýjar skilgreiningar á viðurkenndri meðferð og endurhæfingu

Tvær skilgreiningar eru að finna í frumvarpsdrögunum á hugtökum sem nú eru skilgreind í reglugerð um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur nr. 933/2025. Um er að ræða hugtökin endurhæfing og viðurkennd meðferð. Í báðum tilvikum er um þrengingu að ræða.

Í skilgreiningu um viðurkennda meðferð er bætt við að um sé að ræða heilbrigðistengda meðferð sem „veitt er af þverfaglegu teymi innan heilbrigðisþjónustunnar“. Með þessu virðist vera tekinn út sá möguleiki að umsækjandi, sem er í einstaklingsbundinni meðferð hjá sérfræðingi, lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni falli undir að vera í viðurkenndri meðferð. ÖBÍ bendir á að óvíst er að allir umsækjendur eigi möguleika á meðferð sem veitt er af þverfaglegu teymi innan heilbrigðisþjónustunnar. Þá virðist skilgreiningin útiloka viðurkenndar meðferðir sem veittar eru hjá úrræðum sem eru utan hefðbundinna stofnana heilbrigðiskerfisins. ÖBÍ leggur því til að skilgreiningin verði endurskoðuð þannig að hún endurspegli raunverulega möguleika fólks á viðurkenndir meðferð.

Með frumvarpsdrögunum er hugtakið endurhæfing í raun takmarkað við atvinnutengda starfsendurhæfingu sem er efnisleg breyting frá þeirri skilgreiningu sem nú er í 6. gr. reglugerðar nr. 933/2025. Gildandi skilgreining miðar að því að hámarka, viðhalda eða endurheimta færni einstaklings í daglegum aðstæðum eða til atvinnuþátttöku. Með þessari þrengingu skilgreiningar á endurhæfingu munu einstaklingar, sem eru í þörf fyrir endurhæfingu sem ekki er starfstengd, s.s. sálfélagsleg og heilbrigðistengd, ekki eiga rétt á endurhæfingargreiðslum. ÖBÍ telur þessa breytingu alvarlega og spyr hvernig framfærsla verði veitt fyrir einstaklinga sem eru í endurhæfingu sem ekki fellur undir atvinnutengda starfsendurhæfingu? ÖBÍ leggur áherslu á að fólki verði áfram gert kleift að fá viðeigandi endurhæfingu og að of þröngar skilgreiningar geri það ekki að verkum að fólk falli á milli skips og bryggju framfærslulaust og í hættu á að veikjast enn frekar.

ÖBÍ bendir á að skýra þurfi hvort notendastýrð úrræði geti talist þjónustuaðilar samkvæmt frumvarpinu. Jafnframt þarf að liggja fyrir hvort sálfélagsleg endurhæfing geti verið hluti af endurhæfingaráætlun sem liggur til grundvallar greiðslum. Fyrir fólk með langvarandi eða flókinn geðrænan vanda geta jafningjastuðningur og uppbygging félagslegrar virkni verið mikilvægir þættir í endurhæfingu og forsenda þess að síðar verði unnt að taka skref í átt að atvinnuþátttöku, námi eða þátttöku af öðru tagi. ÖBÍ leggur því til að frumvarpið kveði skýrt á um að notendastýrð úrræði geti talist þjónustuaðilar að uppfylltum faglegum skilyrðum og að sálfélagsleg endurhæfing verði hluti af endurhæfingaráætlun sem tekur mið af þörfum og stöðu hvers einstaklings. Ójafnræði og mismunun eftir endurhæfingu má ekki liggja til grundvallar breytingunum.

5.

Sex mánaða hámarkstími greiðslna á meðan beðið er eftir meðferð eða endurhæfingu

Í frumvarpsdrögunum er lagt til að biðgreiðslur megi greiða í að hámarki samtals sex mánuði án nokkurra undantekninga. Það á því einnig við þegar biðin er vegna langra biðlista eða því að heilsa leyfir ekki að meðferð hefjist. Í núgildandi löggjöf er ekki um slíkt hámark að ræða. ÖBÍ gagnrýnir þessa þrengingu réttinda sem skapar verulega hættu á framfærslurofi ef viðeigandi þjónusta fæst ekki tímanlega, þótt einstaklingur ráði engu um biðina. ÖBÍ þykir vanta tölulegar upplýsingar með frumvarpsdrögunum um fjölda einstaklinga með sjúkra- og endurhæfingargreiðslur sundurliðað eftir mismunandi forsendum greiðslna. Með mismunandi forsendum er átt við greiðslur á grundvelli endurhæfingaráætlunar, vegna biðar eftir að meðferð eða endurhæfing hefjist og vegna heilsubrests sem kemur í veg fyrir að meðferð/endurhæfingu geti hafist.

ÖBÍ leggur til að bætt verði við frumvarpið að heimilt verði að framlengja greiðslutímann ef sannanlegt er að bið eftir viðurkenndri meðferð eða endurhæfingu stafi af biðlistum hjá þjónustuaðila eða innan heilbrigðiskerfisins eða af öðrum ástæðum sem einstaklingi verður ekki um kennt. Frumvarpsdrögin eru þess eðlis að það virðist vera svo að hafa verið litið algjörlega framhjá þeim hópi fólks sem ekki er í atvinnutengdri starfsendurhæfingu líkt og hjá VIRK, en stór hópur fólks reiðir sig á endurhæfingarúrræði líkt og veitt er af Hugarfali og Hringsjá virðist algjörlega vera óvarið fyrir fyrirhuguðum breytingum. Slíkt er bæði alvarlegt og óábyrgt, og augljóst að félagsþjónusta sveitarfélaga mun ekki geta tekið við, hvorki fjárhagslega né faglega.

6.

Niðurfelling heimildar til að greiða í þrjá mánuði á meðan atvinnu er leitað

Í frumvarpsdrögunum er gert ráð fyrir því að fella niður heimild til að greiða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur í allt að þrjá mánuði eftir að endurhæfingu lýkur vegna atvinnuleitar. Ástæðan sem gefin er fyrir breytingunni er að heimildin hafi verið lítið nýtt í framkvæmd. Engar tölulegar upplýsingar fylgja frumvarpinu um hversu oft heimildin hefur verið nýtt. Heimild þessi kom í lögin 1. september 2025 og því lítil reynsla komin á nýtingu hennar. ÖBÍ leggst gegn þessari breytingu.

7.

Staða einstaklinga með gildandi endurhæfingaráætlanir

Samkvæmt frumvarpinu er aðeins heimilt að greiða sjúkra- eða endurhæfingargreiðslur til þeirra sem þegar fá greiðslur 31. desember 2026 og hafa fengið þær í 36 mánuði eða lengur, að hámarki til 30. júní 2027. Að mati ÖBÍ er um stuttan aðlögunartíma að ræða og hvetur til þess að framlengingin nái til 31. desember 2027.

Þá telur ÖBÍ nauðsynlegt að skýrt verði hver staða fólks þann 1. janúar 2027 verður sem er þegar með samþykktar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur til 31. desember 2026. Ef gerð verður sú krafa að þeir einstaklingar fái grunnmat til að halda endurhæfingu áfram munu þeir verða fyrir tekjuleysi í byrjun ársins. ÖBÍ getur ekki stutt við fyrirhugaða breytingu að óbreyttu og telur mikilvægt að líta til þeirra alvarlegu afleiðingar sem þær kunna að hafa.

8.

Sjúkradagpeningar

ÖBÍ styður flutning sjúkradagpeninga frá Sjúkratryggingum Íslands til TR. Einfaldara er fyrir einstaklinga sem verða óvinnufærir af heilsufarsástæðum að leita til einnar stofnunar vegna framfærslu í stað tveggja. Brottfall 21 dags skilyrðisins rýmkar jafnframt rétt fólks sem er óvinnufært í 15–20 daga. Drögin þrengja þó rétt annarra hópa, einkum fólks með skerta starfsgetu. Samkvæmt gildandi 32. gr. laga um sjúkratryggingar getur fólk sem verður algerlega óvinnufært og þarf að leggja niður starf undir 50% átt rétt á sjúkradagpeningum. Fyrirhuguð 66. gr. miðar við að minnsta kosti hálft starf. Einstaklingur í 40% starfi gæti því misst allar launatekjur sínar vegna veikinda án þess að eiga rétt á sjúkradagpeningum. ÖBÍ leggur til að réttur fólks í starfi undir 50% verði tryggður áfram.

Samkvæmt fyrirhugaðri 74. gr. falla sjúkradagpeningar niður á sama tímabili og hlutaörorkulífeyrir er greiddur. Einstaklingur í 60% starfi sem fær hlutaörorkulífeyri gæti því uppfyllt starfshlutfallsskilyrðið en samt verið útilokaður frá dagpeningum þegar launin falla niður vegna veikinda. ÖBÍ leggur til að heimilt verði að greiða sjúkradagpeninga vegna launataps úr starfi sem fólk sinnir samhliða hlutaörorkulífeyri.

Drögin gera ráð fyrir tólf mánaða tryggingatíma með fyrirvara um milliríkjasamninga, efri aldursmörkum við lögbundinn ellilífeyrisaldur og ársbið frá síðustu greiðslu áður en nýtt greiðslutímabil getur hafist. Ársbiðin getur skert rétt fólks með endurtekin veikindi, jafnvel eftir stutt greiðslutímabil. Þá falla brott sérákvæði um námstafir, niðurfall heimilisstarfa, kostnað við heimilishjálp og greiðslur eftir heimafæðingu. ÖBÍ óskar eftir því að ráðuneytið geri grein fyrir því hverjir missa rétt, hversu margir verða fyrir áhrifum og hvaða framfærsluúrræði standa þeim til boða.

9.

Aðrar athugasemdir

ÖBÍ gerir alvarlega athugasemd við að veittir séu fáeinir dagar í umsagnarfrest í jafn umfangs- og áhrifamiklu máli og það sem frumvarpsdrögin fjalla um. Í frumvarpsdrögunum virðist alfarið verið litið framhjá því að undir er stór hópur fólks sem fram til þess hefur reitt sig á endurhæfingargreiðslur og óvíst hver staðan verður fyrir þann hóp verði af gildistöku breytinganna 1. janúar 2027. Fram til þessa hefur umræddum hópi ítrekað verið synjað um umsókn á örorkulífeyri á þeim forsendum að endurhæfing hafi ekki verið fullreynd. ÖBÍ getur að svo stöddu ekki stutt við meginefni frumvarpsdraganna að óbreyttu og óskar eftir því að ráðuneytið fari varlega í breytingar sem kunna að hafa óafturkræfar og alvarlegar afleiðingar. ÖBÍ styður aftur á móti breytingar sem fela í sér bætt lífsgæði og aukin tækifæri.

Virðingarfyllst,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Sigríður Hanna Ingólfsdóttir
félagsráðgjafi ÖBÍ

Þórdís Bjarnleifsdóttir
verkefnastjóri ÖBÍ

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ

Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ


Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, (grunnmat, sjúkradagpeningar o.fl.) | Samráðsgátt | Mál: S-234/2026 
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið [Skrifstofa vinnumarkaðar og almannatrygginga]. Umsögn ÖBÍ, 19. nóvember 2026