
Frá réttindagöngu ÖBÍ, 1. maí 2026. Mynd: Ruth Ásgeirsdóttir
ÖBÍ réttindasamtök hafa tekið til umsagnar drög að reglugerð um Byggðastofnun sem var birt í samráðsgátt stjórnvalda. Almennt fagnar ÖBÍ því að drög að reglugerðinni eru komin fram. ÖBÍ leggur til eftirfarandi viðbót við reglugerðina.
Í 1. málslið í 18. gr. segir: „Byggðastofnun getur, í samræmi við hlutverk sitt, stuðlað að stofnun nýrra fyrirtækja samkvæmt ákvörðun stjórnar. Höfð skal hliðsjón af byggðastefnu við slíkar ákvarðanir.“ ÖBÍ leggur til að eftirfarandi breytingu:
„Byggðastofnun getur, í samræmi við hlutverk sitt, stuðlað að stofnun nýrra fyrirtækja samkvæmt ákvörðun stjórnar. Höfð skal hliðsjón af byggðastefnu ásamt aukningu fjölbreytni starfa við slíkar ákvarðanir.“
Í 18. gr. rgl. er Byggðastofnun heimilt til að leggja til aðstoð, ráðgjöf, ábyrgð og jafnvel fjármagn til að stofna ný fyrirtæki til að styrkja byggðastefnu og atvinnuástand á ákveðnu svæði. ÖBÍ áréttar skyldur opinberra aðila samkvæmt lögum nr. 80/2025 um samning Sameinuði Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, í ljósi þess að stofuninni er heimilt að leggja til opinbert fé til að stofna fyrirtæki og fjölga störfum.
Í lögum nr. 80/2025 um samning Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks segir í 4. grein: „Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að efla og tryggja að fullu öll mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi á grundvelli fötlunar …. og að samþykkja alla viðeigandi löggjöf og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til að tryggja þau réttindi sem viðurkennd eru með samningi þessum“. Til viðbótar segir í 27. gr. um vinnu: Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks, til jafns við aðra, til vinnu; í því felst réttur til að fá tækifæri til að afla sér lífsviðurværis með vinnu að eigin vali eða samþykki á vinnumarkaði og í vinnuumhverfi sem fötluðu fólki stendur opið, er án aðgreiningar og er því aðgengilegt. Aðildarríkin skulu tryggja og stuðla að því að rétturinn til vinnu verði að veruleika, einnig fyrir þau sem verða fötluð meðan þau gegna starfi, með því að gera viðeigandi ráðstafanir, þar með talið með lagasetningu.
Í ljósi ofangreindra sjónamiða um hlutverk Byggðastofnunar til að stuðla að aukinni byggðafestu með uppbyggingu atvinnufyrirtækja telur ÖBÍ rétt að árétta ofangreind sjónamið sem fram koma í lögum um samning Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Ekkert um okkur án okkar!
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Sunna Elvíra Þorkelsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Drög að reglugerð um Byggðastofnun
Mál nr. S-80/2026. Innviðaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 29. júní 2026

