HeilbrigðismálUmsögn

Drög að reglugerð um heilsugæslu

By 10. júlí 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök hafa til umsagnar drög að reglugerð um heilsugæslu [PDF]. Með reglugerðinni er útskýrt betur hvaða þjónustu heilsugæslan á eiga að veita, aðgengi að þjónustunni og auka skilvirkni og tryggja skýrari kröfur til þjónustu heilsugæslustöðva.

ÖBÍ vill koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum:

1.

Aðgengi að heilsugæslustöðvum

ÖBÍ leggur áherslu á að aðgengi að heilsugæslustöðvum og þjónustu þeirra verði jafnt fyrir alla. Tryggja verður jafnan aðgang að sérfræðiþekkingu og að hún sé til staðar. Tryggja þarf að ákveðin þjónusta verði til staðar innan heilbrigðisumdæmis. Sem dæmi má nefna að brjóstagjafaráðgjafar eru til staðar á örfáum heilsugæslustöðvum og því mikilvægt að geta tekið á móti þeim sem þurfa ráðgjöf af annarri stöð svo þjónusta við þann hóp verði tryggð. Þetta á líka við um þekkingu á sjaldgæfum sjúkdómum og á hjálpartækjum hvers konar. Að því sögðu er vert að nefna að ÖBÍ hefur vakið athygli á ónógu aðgengi að leghálsskimun fyrir fatlaðar konur á heilsugæslustöðvum.

Það sama gildir um rafrænt aðgengi. Það er mikilvægt að tryggja sjúklingum aðgengi að rafrænum samskiptum.

2. 

Skráning á heilsugæslustöð

ÖBÍ leggur áherslu á að við skráningu á heilsugæslustöð sé kerfi sem tryggir einstaklingi viðeigandi þjónustu við hæfi og í þverfaglegu teymi. Undanfarin ár hefur verið mjög erfitt að fá tíma hjá heimilislækni og því leggur ÖBÍ til að einstaklingur fái þjónustu hjá faglærðum aðila þegar leitað er til heilsugæslustöðvar, hvort sem það er hjá heimilislækni eða öðrum.

3. 

Mönnun

ÖBÍ leggur áherslu á að heilbrigðisráðuneytið láti framkvæma reglulega mönnunarþörf fagstétta sem vinna innan heilsugæslunnar til að geta tryggt þjónustu stöðvarinnar og mæta framtíðaráskorunum.

4. 

Húsnæði og búnaður

Að mati ÖBÍ þarf húsnæði og búnaður heilsugæslustöðva að vera í takt við þá þjónustu sem veitt er, um leið og húsnæðið sem slíkt sé eftirsóknarverð fyrir starfsfólk að vinna í. Að mati ÖBÍ þarf að hafa í huga aðbúnað sem fatlað fólk þarf á að halda til að tryggja jafnt aðgengi að þjónustu, s.s.lyftara, skoðunarbekki, píptæki fyrir blinda eða sjónskerta, og texta á skjá fyrir heyrnarskerta eða heyrnarlausa.

5.

Hlutverk og þjónustu heilsugæslunnar

ÖBÍ fagnar sérstaklega h. lið sem fjallar um þjónustu við einstaklinga sem eru í hættu á að fá fjölþættan og/eða langvinnan heilsuvanda.

ÖBÍ leggur áherslu á að þjónusta heilsugæslunnar nái til allra, þ.á.m. jaðarsetta hópa.

Í drögunum segir að heilsugæslur skuli bjóða uppá rafræn samskipti án frekari útskýringa. Er hér átt við rafræna endurnýjun á ákveðnum lyfjum eða falla skilaboð til lækna og tímabókanir hér undir?

6. 

Miðlæg þjónusta

Að mati ÖBÍ má bæta við í E. lið að hópfræðsla og ráðgjöf nái til allra og þarf sérstaklega að gæta að ráðgjöf til jaðarsettra hópa, s.s. heimilislauss fólks og fólks með fjölþættan vanda.

Í drögum að reglugerðinni er ekki minnst á starfsemi þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu sem leiddi faglega þróun innan heilsugæslu á landsvísu, vann að samræmingu verklags og samhæfingar milli fagfólks á heilsugæslustöðvum, gæðaþróun og framförum í heilsugæslu í samráði við heilbrigðisstofnanir. Þó að ýmsum þessum hlutverkum hafi verið fundinn annar staður í drögunum, er hvergi að finna í þeim atriði er varða samræmingu verklags og samhæfingu milli fagfólks á heilsugæslustöðvum.

Ekkert um okkur án okkar!

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka


Drög að reglugerð um heilsugæslu
Mál nr. S-110/2026. Heilbrigðisráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 10. júlí 2026