
Adobe Stock
ÖBÍ réttindasamtök fagna því að sett séu skýrari viðmið og málsmeðferð þegar börn með miklar og flóknar stuðningsþarfir þurfa á sérhæfðum úrræðum að halda. Jákvætt er að í drögunum er vísað sérstaklega til bæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.
Drög að reglugerðinni fjalla um afar viðkvæman þátt í lífi barna og fjölskyldna þeirra, þar sem íþyngjandi stjórnvaldsákvarðanir um vistun barna utan heimilis koma til álita. Slíkar ákvarðanir verða að rúmast innan mannréttindaskuldbindinga ríkisins, einkum hvað varðar bann við mismunun, rétt til sjálfstæðs lífs, rétt til fjölskyldulífs og rétt barna til að vera ekki aðskilin frá foreldrum sínum á grundvelli fötlunar.
Samkvæmt 5. gr. SRFF skulu fatlaðir einstaklingar njóta jafnréttis fyrir lögum og ekki sæta mismunun á grundvelli fötlunar. Í því ljósi er mikilvægt að tryggja að reglugerðin leiði ekki til þess að fötlun barns eða foreldra sé notuð sem sjálfstæður eða ólögmætur grundvöllur vistunar utan heimilis, stuðningsþörf sé ranglega túlkuð sem vanhæfni foreldra og að vistun sé talin „nauðsynleg“ þar sem raunverulegur stuðningur við fjölskyldu hefur ekki verið veittur.
Reglugerðin leggur áherslu á að úrræði í nærumhverfi séu „fullreynd“ áður en vistun kemur til álita. Brýnt er að tryggja að slík úrræði hafi verið fullnægjandi, aðgengileg, einstaklingsmiðuð og í samræmi við rétt fatlaðra foreldra til stuðnings í foreldrahlutverki.
Þótt kveðið sé á um að tryggja eigi þátttöku barns og foreldra í 7. gr., er ekki tryggt að afstaða þeirra hafi raunverlegt vægi í ákvörðun og að barn og foreldrar njóti óháðs stuðnings eða talsmanns við málsmeðferðina.
Drög að reglugerðinni fela í sér mikilvægt framfaraskref í skipulagi og ábyrgð vegna þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir. ÖBÍ hvetur samt sem áður stjórnvöld til að endurskoða reglugerðardrögin með það að leiðarljósi að meginmarkmið þjónustu við fötluð börn sé að tryggja þeim rétt til fjölskyldulífs, jafnræðis og mannlegrar reisnar.
Ekkert um okkur án okkar!
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins
Mál nr. S-74/2026. Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 22. apríl 2026

