HúsnæðismálUmsögn

Fasteignalán til neytenda og nauðungarsala (nauðungarsala og eftirstöðvar)

By 7. október 2026október 13th, 2026No Comments
Gosbrunnur og gata í Reykjanesbæ

ÖBÍ réttindasamtök taka undir markmið frumvarpsins um að styrkja stöðu neytenda í greiðsluerfiðleikum. Nauðungarsala fasteignar á að vera úrræði til þrautavara og aðrar leiðir fullreyndar áður en til hennar kemur. Ákvæði 2. og 4. gr. frumvarpsins eru mikilvægt skref í þá átt. Þar er gerðarbeiðanda gert skylt að ganga úr skugga um að neytanda hafi verið veitt færi á úrræðum vegna greiðsluerfiðleika og leggja fram gögn því til staðfestingar.

Leiðbeiningar og aðstoð áður en kemur til nauðungarsölu

ÖBÍ hefur áður bent á að nauðungarsala heimilis sé sérstaklega íþyngjandi úrræði. Tryggja þarf að einstaklingur skilji stöðu sína og að öll bjargráð hafi verið fullreynd. Fötlun getur haft áhrif á möguleika fólks til að afla og vinna úr upplýsingum, bregðast við innheimtuaðgerðum eða hefja samningaviðræður við kröfuhafa. Formleg upplýsingagjöf tryggir því ekki alltaf raunverulegt aðgengi að þeim úrræðum sem standa til boða.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), sem nú hefur verið lögfestur, leggur ríkar skyldur á stjórnvöld í þessu samhengi. Samkvæmt 9. og 21. gr. skal tryggja fötluðu fólki aðgengi að upplýsingum og samskiptum til jafns við aðra. Í 12. gr. er kveðið á um stuðning við nýtingu löghæfis og jafnan rétt fatlaðs fólks til að stýra eigin fjármálum. Þá viðurkennir 28. gr. rétt fatlaðs fólks til viðunandi lífskjara, þar á meðal húsnæðis og félagslegrar verndar.

ÖBÍ telur því ekki nægilegt að neytanda hafi aðeins verið „veitt færi“ á að óska eftir úrræðum. Tryggja þarf að hann fái skýrar og aðgengilegar upplýsingar og viðeigandi leiðbeiningar áður en nauðungarsölu er krafist. Umboðsmaður skuldara gætir hagsmuna og réttinda einstaklinga í fjárhagsvanda og veitir endurgjaldslausa ráðgjöf og aðstoð við að leita lausna á greiðsluerfiðleikum. ÖBÍ telur því mikilvægt að tryggja skýra tengingu milli nauðungarsöluferlisins og þjónustu embættisins.

ÖBÍ leggur til að kveðið verði á um sérstaka leiðbeiningarskyldu áður en nauðungarsölubeiðni er tekin til frekari meðferðar.

Tryggja þarf að gerðarþoli fái upplýsingar um þjónustu og úrræði Umboðsmanns skuldara og meðtaki þær upplýsingar. Jafnframt verði ráðherra veitt heimild til að útfæra nánar í reglugerð hvernig upplýsingagjöf skuli háttað og hvernig nauðsynlegum upplýsingum um stöðu máls verði miðlað til Umboðsmanns skuldara, að teknu tilliti til persónuverndar.

Markmiðið er að nauðungarsala heimilis fari ekki fram án þess að viðkomandi hafi fengið raunhæft tækifæri og nauðsynlegan stuðning til að nýta úrræði sem geta komið í veg fyrir hana.

ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.

Ekkert um okkur án okkar!

Með vinsemd og virðingu,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ


Fasteignalán til neytenda og nauðungarsala (nauðungarsala og eftirstöðvar)
83. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 7. október 2026