
© UNCHR / Flóttamannnastofnun Sameinuðu þjóðanna
Inngangur
ÖBÍ réttindasamtök (ÖBÍ) eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks í hverskyns hagsmunamálum. Samtökin gæta hagsmuna fatlaðs fólks á Íslandi óháð uppruna. ÖBÍ minnir á að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) var lögfestur hér á landi 12. nóvember s.l. Með SRFF er fötluðu fólki tryggð sérstök réttindi. Markmiðið með samningnum er að efla, verja og tryggja að allt fatlað fólk njóti til fulls og til jafns við aðra allra mannréttinda og grundvallarfrelsis og að efla virðingu fyrir eðlislægri reisn þess. Í p) lið formálsorða samningsins segir að aðildarríki hans hafi áhyggjur af erfiðum aðstæðum fatlaðs fólks sem sætir fjölþættri eða aukinni mismunun m.a. á grundvelli kynþáttar, litarháttar, tungumáls, trúarbragða, þjóðernis eða félagslegs uppruna.
Í Grænbók í málefnum innflytjenda og flóttamanna frá 2023 kom m.a. fram að mikilvægt væri að huga vel að fötluðu fólki og gefa sértakan gaum. Sértæk staða fatlaðra innflytjenda og fjölskyldna þeirra felist oft í tungumálaáskorunum, þeir búi við veikt félagslegt bakland, séu líklegri til að vera úr hópi lágtekjufólks eða undir fátæktarmörkum og að upplýsingar um málefni er varði fötlun séu síður aðgengilegar. ÖBÍ leggur áherslu á að í framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda verði gætt sérstaklega að stöðu og réttindum fatlaðs fólks af erlendum uppruna.
Athugasemdir við einstaka kafla áætlunarinnar
Um 1., og 2. kafla
Aðgerðir um íslenskunám og notkun tungumálsins í daglegu og aðgerðir um mat á námi og þátttöku á vinnumarkaði
Samkvæmt 9. gr. SRFF ber íslenskum stjórnvöldum að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja fötluðu fólki aðgengi, til jafns við aðra. Viðeigandi ráðstafanir sem miða að því skulu samkvæmt ákvæðinu fela í sér að bera kennsl á og útrýma hindrunum og tálmunum aðgengis og skulu meðal annars ná til upplýsinga og samskipta auk annarrar þjónustu, þar á meðal rafrænnar þjónustu, sbr. b)- liður 1. mgr.
Samkvæmt 2. mgr. 24. gr. samningsins skulu aðildarríkin tryggja réttinn til menntunar með því að tryggja að fatlað fólk sé ekki útilokað frá almenna menntakerfinu á grundvelli fötlunar og að viðeigandi aðlögun2 sé veitt í samræmi við þarfir einstaklinga.
ÖBÍ fagnar áherslu á að unnið verði að þróun í kennslu íslensks táknmáls sem annars máls, sbr. e-liður 1.1. gr.
Tryggja verður aðgengi fatlaðs fólk að þeim kennsluaðferðum sem notaðar verða við íslenskukennslu og aðra fræðslu samkvæmt 1. og 2. kafla. Gæta verður sértaklega að því að tryggja aðgengi alls fatlaðs fólks að stafrænum lausnum sem notaðar verða í því skyni.
Við undirbúning á vitundarvakningu um mikilvægi þess að íslenska sé fyrsta val í samskiptum á Íslandi, sbr. a-liður, 1.5. gr., verður að tryggja að efni hennar sé aðgengilegt öllum.
Þá ber að huga að því að í öllu námi sé tryggð viðeigandi aðlögun fyrir það fatlaða fólk sem tekur þátt í því.
Um 3. kafla
Aðgerðir um upplýsingaþjónustu, samfélagsfræðslu og þátttöku
ÖBÍ fagnar því að tekið var tillit til athugasemda samtakanna á fyrri stigum að nokkur leiti í 3.1. gr. Bætt hefur verið við ákvæðið tilvísun til þess að sérstaklega verði gætt að aðgengi fyrir viðkvæma hópa, svo sem fólk með fötlun og ólæsa. Með 3.4. gr. er stefnt að því að innflytjendabörn og ungmenni njóti jafnra tækifæra á við önnur börn og ungmenni til að læra og þroskast í fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi utan hefðbundins skólastarfs. Í ljós hefur komið að hlutfall fatlaðra barna sem taka þátt í slíku starfi á Íslandi hefur verið mjög lágt. Unnið hefur verið að því að hækka hlutfallið með sérstöku átaki. Í ljósi fjölþættrar mismununar og hinna sérstöku áskorana fatlaðra barna af erlendum uppruna telur ÖBÍ að þeim verði að gefa sérstakan gaum í þessum áformum.
Um 4. kafla
Aðgerðir um sérstaklega viðkvæma hópa
Sem fyrr segir tryggir SRFF fötluðu fólki sérstök réttindi og hið sama á við um ýmis önnur lög sem gilda hér á landi og varða réttindi fatlaðs fólks. ÖBÍ bendir því á að réttindi fatlaðs fólks eru ekki tryggð með því flokka fatlað fólk með viðkvæmum hópum.
ÖBÍ fagnar því að lögð sé áhersla á að styðja við geðheilbrigði flóttafólks með eflingu á sálrænum stuðningi og meðferðum við áfallastreytu.
Í 4.1. gr. eru áform um kortlagningu samfélagsþátta sem vinni gegn fátækt og jaðarsetningu innflytjenda. ÖBÍ minnir á að fötlun geti verið á meðal þeirra þátta sem hér koma til skoðunar.
Í 4.6. gr. eru markmið um að stuðla að jafnræði, samræmi og bættri framkvæmd þegar kemur að aðgengi barna á flótta að opinberri þjónustu, þ.m.t. innan mennta-, félags-, heilbrigðis- og barnaverndarþjónustunnar. Samkvæmt reynslu ÖBÍ er bráðnauðsynlegt að huga betur að þörfum fatlaðra barna á flótta og foreldra þeirra. Mikilvægt er að slík markmið eigi jafnt við um umsækjendur um alþjóðlega vernd og þá flóttamenn sem veitt hefur verið vernd hér á landi.
Um 5. kafla
Aðgerðir um tölfræði og rannsóknir
Í 5. kafla eru kynnt áform um bætta tölfræði, rannsóknir, gagnaöflun og þekkingarmiðlun um innflytjendur. ÖBÍ leggur áherslu á að við slíka vinnu verði aflað upplýsinga um fatlaða innflytjendur og flóttamenn. Það er mikilvægt til að hægt sé að leggja mat og bæta stöðu fatlaðs fólks af erlendum uppruna hér á landi. Væri það auk þess í samræmi skuldbindingar Íslands samkvæmt 31. gr. SRFF. Samkvæmt henni skuldbinda aðildarríkin sig til þess að safna viðeigandi upplýsingum, meðal annars tölfræðilegum gögnum og rannsóknargögnum, sem gera þeim kleift að móta og framfylgja stefnum samningi þessum til framkvæmdar.
Ekkert um okkur án okkar!
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ
Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029
597. mál, þingsályktunartillaga.
Umsögn ÖBÍ, 4. maí 2026

