Málefni barnaUmsögn

Frumvarp til laga um aðgang barna að samfélagsmiðlum

By 9. október 2026október 12th, 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök fagna því að stjórnvöld vinni að aukinni vernd barna og ungmenna í stafrænu umhverfi og styðja það markmið að draga úr skaðlegum áhrifum samfélagsmiðla á börn. ÖBÍ tekur undir áhyggjur af neikvæðum áhrifum samfélagsmiðla á velferð barna, þar á meðal neteinelti, áreiti, misvísandi upplýsingar og skaðlegt efni. Samtökin telja hins vegar mikilvægt að vandað mat fari fram á því hvort aldurstakmörk og takmarkanir á aðgengi séu áhrifaríkasta leiðin til að ná fram markmiðum frumvarpsins.

ÖBÍ vill sérstaklega vekja athygli á því að boð og bönn ein og sér skila ekki endilega þeim árangri sem að er stefnt. Reynslan sýnir að börn og ungmenni finna oft leiðir fram hjá tæknilegum takmörkunum og með frumvarpi þessu er framkvæmd laganna færð yfir á foreldrana. Slík nálgun getur leitt til þess að misræmi skapist milli barna eftir því hversu strangt foreldrar framfylgja reglum eða hversu vel þeir hafa tök á að fylgjast með netnotkun barna sinna.

ÖBÍ telur einnig brýnt að huga að mögulegum félagslegum afleiðingum laganna. Í fyrri umsögn ÖBÍ um málið var lögð rík áhersla á að áhrif stafrænnar tækni á fötluð börn og ungmenni séu margþætt. Sama tækni og getur skapað áhættu felur oft í sér nauðsynlega forsendu fyrir félagslegri þátttöku, upplýsingaöflun, samskiptum og sjálfstæði fatlaðra barna og barna sem glíma við skólaforðun eða félagslega einangrun.

Aðgengileg fræðsla og algild hönnun

Í 4. gr. frumvarpsdraganna er mælt fyrir um skyldu ráðherra til að stuðla að reglubundinni fræðslu til barna, foreldra og forsjáraðila um ábyrga notkun samfélagsmiðla, meðal annars á vettvangi grunnskóla. Skortur á aðgengilegri fræðslu eykur varnarleysi barna í stafrænu umhverfi. Tryggja þarf að öll börn hafi jafnan aðgang að fræðslu um miðlalæsi og netöryggi.

ÖBÍ leggur til að eftirfarandi viðbót verði gerð við 4. gr. frumvarpsins:

„Fræðsla og upplýsingaefni samkvæmt ákvæði þessu skal útfært í samræmi við meginreglur um algilda hönnun þannig að það sé aðgengilegt öllum börnum, meðal annars fötluðum börnum.“

Alþjóðlegir mannréttindasamningar

Í greinargerð frumvarpsdraganna er lagt mat á samræmi við stjórnarskrá og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (sbr. lög nr. 19/2013). ÖBÍ bendir á að algjörlega vanti tilvísun til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), sbr. lög nr. 80/2025.

Í samræmi við fyrri umsögn ÖBÍ er óskað eftir því að sérstaklega verði gætt að 9. gr. SRFF um aðgengi að upplýsinga- og samskiptatækni og 21. gr. SRFF um tjáningar- og skoðanafrelsi og aðgang að upplýsingum.

Eftirlit með áhrifum og þátttaka fatlaðs fólks

Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að jákvæð verndaráhrif frumvarpsins séu talin vega þyngra en möguleg neikvæð áhrif á félagslega þátttöku og upplýsingaöflun barna. ÖBÍ ítrekar kröfu sína um að fram fari reynslumat og reglubundið mat á raunverulegum áhrifum laganna þegar þau hafa tekið gildi. Í ljósi einkunnarorðanna „Ekkert um okkur án okkar“ fer ÖBÍ fram á að fötluð börn, ungmenni og samtök fatlaðs fólks verði virkir þátttakendur í vöktun á framkvæmd laganna og í undirbúningi endurskoðunar samkvæmt ákvæði til bráðabirgða.

Ekkert um okkur án okkar!

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ

Mál nr. S-186/2026 [Samráðsgátt stjórnvalda] Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 9. október 2026