
Adobe Stock
ÖBÍ réttindasamtök eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks í hvers kyns hagsmunamálum. ÖBÍ fagnar því að festa eigi í sessi varanlegan grundvöll fyrir sanngirnisbótum. Samtökin leggja áherslu á að á meðal þeirra sem frumvarpið gæti haft áhrif á er fjöldi fatlaðs fólks og að taka verði sérstakt tillit til þess. Sérstök athygli er vakin á að samkvæmt 13. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks ber að tryggja fötluðu fólki aðgengi að réttinum (e. access to justice) til jafns við aðra, m.a. með aðlögun málsmeðferðar.
ÖBÍ leggur í fyrstu til að við frumvarpið verði bætt ákvæði líkt og lagt er til með 5. gr. 7. gr. í drögum að reglugerð um fósturheimilanefnd. Ákvæðið kveður á um að á kostnað hins opinbera skuli tryggja að málsmeðferð sé aðgengileg fólki með fötlun og þeim sem þarfnast sérstakrar aðstoðar og leiðbeininga, svo sem vegna geðrænna áskorana. Þar undir falli réttur til viðeigandi aðlögunar, svo sem táknmálstúlkunar, sérstakrar upplýsingagjafar og annars sérhæfðs stuðnings.
Í 2. mgr. 4. gr. segir m.a.: „Við það mat skal leggja frásögn umsækjanda til grundvallar nema hún sé í ósamræmi við önnur gögn málsins […]“. Í núverandi mynd mætti túlka ákvæðið þannig að hvaða ósamræmi sem er gæti gert það að verkum að frásögn yrði ekki lögð til grundvallar. ÖBÍ leggur til að ákvæðinu verði breytt þannig að það geti aðeins átt við ef um verulegt ósamræmi sé að ræða sem hafi svo mikil áhrif á heildarmat nefndarinnar að frásögn verði ekki lögð til grundvallar. Enn fremur er nauðsynlegt að tryggja fötluðu fólki viðeigandi aðlögun. Leggja verður til grundvallar þekkingu á því hvaða áhrif fatlanir geta haft á getu fólks til að greina frá atburðum.
Í 3. mgr. 6. gr. frumvarpsdraganna er kveðið á um að sanngirnisbætur verði ekki greiddar vegna vistunar á stofnun eða heimili á tímabili sem innköllun samkvæmt lögum nr. 47/2010 tók til, hvort sem umsækjandi lagði fram kröfu á grundvelli innköllunar eða ekki. ÖBÍ bendir á að sumt fatlað fólk er ólíklegra til að fá upplýsingar um innkallanir og hafa skilning á þeim kröfum sem gerðar eru. ÖBÍ leggur til að ekki verði útilokað með öllu að fatlaðir einstaklingar geti komið kröfum sínum að vegna hins tilgreinda tímabils.
Í 1. mgr. 13. gr. frumvarpsins er lagt til að tryggt sé að í stjórninni sé nægileg sérþekking á sviði læknisfræði eða sálfræði, barnaverndar og félagsráðgjafar. ÖBÍ leggur til að við upptalninguna verði bætt kröfu um þekkingu á fötlunum og réttindum fatlaðs fólks.
ÖBÍ fagnar ákvæði 21. gr. um skattfrelsi og vernd greiðslna.
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ
Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ
Frumvarp til laga um sanngirnisbætur | Samráðsgátt | Mál: S-226/2026
Forsætisráðuneytið. Umsögn ÖBÍ, 17. nóvember 2026

