
Adobe Stock
„ÖBÍ leggur mikla áherslu á að við þróun á endurhæfingu verði tryggt nægt framboð af hæfu starfsfólki um allt land, þar með talið sérfræðinga á sviði einhverfu, heyrnar, talmeinafræði og annarra sérhæfðra endurhæfingarsviða eins og sjúkra- og iðjuþjálfa.“
ÖBÍ réttindasamtök hafa tekið til skoðunar hvítbók um endurhæfingu sem var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda.
Umsögn
ÖBÍ fagnar útgáfu hvítbókar um endurhæfingarþjónustu og þeirri metnaðarfullu framtíðarsýn sem þar er sett fram. Hvítbókin markar mikilvægt skref í átt að heildstæðri stefnu um endurhæfingu þar sem einstaklingurinn er í forgrunni, þjónustan byggir á gagnreyndri þekkingu og áhersla er lögð á samfellda þjónustu, árangur og þátttöku.
1. Mikilvægi endurhæfingar og einstaklingsmiðaðrar þjónustu
Hvítbókin varpar ljósi á að þörf fyrir endurhæfingu fer vaxandi. Í Evrópu er talið að tveir af hverjum fimm þurfi á endurhæfingu að halda einhvern tímann á æviskeiði sínu. Vaxandi þörf fyrir endurhæfingu kemur til vegna lýðfræðilegra breytinga í þjóðfélaginu, hækkandi meðalaldri, aukinni tíðni langvinnra sjúkdóma og annarra heilsufarsvandamála ásamt framförum í læknavísindum.
ÖBÍ styður þá grundvallarsýn að endurhæfingu verði ætlað að ná til virkni og þátttöku einstaklinga fremur en eingöngu sjúkdómsgreininga, skerðinga og getu til virkni á vinnumarkaði. Því telur ÖBÍ mikilvægt að endurhæfing byggi á einstaklingsmiðaðri þjónustu sem tekur á samspili heilsu, umhverfis og samfélagslegrar þátttöku.
2. Skilgreining á endurhæfingu
Frá upphafi hefur skortur á samræmdi skilgreiningu á endurhæfingu flækt þróun og veitingu þjónustu varðandi endurhæfingu.
Því er skilgreining á endurhæfingu sem fram kemur í hvítbókinni mjög mikilvæg. ÖBÍ styður skilgreininguna sem sett er fram í hvítbókinni: “Endurhæfing er einstaklingsmiðuð, þverfagleg og gagnreynd þjónusta sem miðar að því að hámarka færni, sjálfstæði og þátttöku einstaklinga skerta virkni í samspili við umhverfi sitt. Þjónustan byggir á heildstæðu mati á endurhæfingarþörf, skýrri markmiðasetningu, samræmdri teymisvinnu og reglubundnu endurmati og er veitt á öllum stigum heilbrigðisþjónustu í samræmi við þarfir hvers og eins.”
3. Endurhæfing og réttindi fatlaðs fólks
ÖBÍ telur mjög mikilvægt að innleiðing hvítbókarinnar taki mið af réttindum fatlaðs fólks samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, nr. 80/2025. Markmið endurhæfing á að stuðla að auknu sjálfstæði, virkni og samfélagsþátttöku en ekki eingöngu með endurkomu á vinnumarkað eða mögulegum læknisfræðilegum árangri.
Hjá fötluðu fólki og öryrkjum er árangur endurhæfingar ekki eingöngu mældur í aukinni atvinnuþátttöku heldur í auknu sjálfstæði í daglegu lífi, bættri félagslegri þátttöku, auknum lífsgæðum, minni einangrun, bættri geðheilsu og aukinni þátttöku í námi, starfi eða samfélagslífi eftir því sem við á. ÖBÍ telur mikilvægt að árangursmat endurhæfingar taki mið af ofangreindum þáttum til viðbótar við aukna atvinnuþátttöku.
4. Jafnt aðgengi að endurhæfingu
ÖBÍ leggur ríka áherslu á að endurhæfingarþjónusta verði aðgengileg öllum óháð búsetu, efnahag, aldri, fötlun eða félagslegum aðstæðum. Raunin er því miður þannig í dag að verulegur munur er á aðgengi fatlaðs fólks að endurhæfingarþjónustu eftir búsetu. Að mati ÖBÍ þarf að tryggja markvissa uppbyggingu á endurhæfingarþjónustu um land allt. Huga þarf sérstaklega að endurhæfingarþjónustu við fjölbreyttan hóp fatlaðs fólks og sérstaklega að þjónustu við fólk með einhverfu, heyrna- og sjónskerðingu og með flóknar og langvarandi stuðningsþarfir.
ÖBÍ bendir á að í núverandi ástandi er langur biðlisti eftir endurhæfingu. ÖBÍ hvetur til þess að hvítbókin taki mið af þeirri áskorun og að endurhæfingarúrræðum verði fjölgað sem og endurhæfingarplássum.
ÖBÍ hvetur til þess að við innleiðingu á stafrænni þróun í endurhæfingu að stafræn kerfi skapi ekki nýjar hindranir fyrir fatlað fólk eða þau sem búa við skert aðgengi að tæknilausnum.
5. Endurhæfing barna
ÖBÍ tekur undir þær áherslur sem fram koma í hvítbókinni er varðar endurhæfingu barna. Í ljósi þess að börn þroskast hratt, getur endurhæfing sem er snemmtæk, samfelld og fjölskyldumiðuð haft afgerandi áhrif á færni, þátttöku, lífsgæði og framtíðarmöguleika þeirra.
Tryggja þarf að börn fái aðgang að endurhæfingarþjónustu óháð búsetu og að þjónustan verði vel samhæfð milli heilbrigðisþjónustu, skóla, félagsþjónustu og annarra þjónustukerfa. Jafnframt er mikilvægt að foreldrar og fjölskyldur séu virkir samstarfsaðilar í allri áætlanagerð og framkvæmd þjónustunnar. Fjárfesting í endurhæfingu barna er ekki aðeins fjárfesting í velferð barnsins heldur einnig í framtíðarþátttöku þess í samfélaginu og getur dregið verulega úr þörf fyrir umfangsmeiri stuðning síðar á lífsleiðinni.
6. Samfella þjónustu og samskiptaleysi kerfa
ÖBÍ telur að ein stærsta áskorunin sem endurhæfingaþjónusta á Íslandi stendur frammi fyrir er skortur á samhæfingu milli heilbrigðiskerfis, félagsþjónustu, menntakerfis, TR, starfsendurhæfingar og sveitarfélaga. Því miður er raunin sú að allt of margir þurfa sjálfir að halda utan um samskipti margra stofnana og þjónustuveitenda. Slíkt veldur álagi, óöryggi og hættu á að fólk falli á milli kerfa. Að auki þarf að auka fyrirsjáanleika endurhæfingarlífeyris til að koma í veg fyrir framfærsluleysi og -kvíða fólks. Að mati ÖBÍ þarf að taka til skoðunar skil milli starfsendurhæfingar og heilbrigðistengdrar endurhæfingar og hvert sé hlutverk aðila sem sinna þessum endurhæfingum.
ÖBÍ saknar að í hvítbókinni er ekki getið neinna atrið um miðlægan gagnagrunn varðandi bið eftir endurhæfingu. ÖBÍ styður heilshugar lykilmarkmið hvítbókarinnar sem er að einstaklingurinn upplifi eitt samfellt þjónustukerfi en ekki mörg aðskilin kerfi og vonast til að slíkt verði að veruleika.
7. Fjármögnun og mannauður
ÖBí fagnar því sem fram kemur í hvítbókinni að endurhæfing sé fjárfesting í aukinni virkni, betri líðan og auknu sjálfstæði sem leiðir til minni þarfa fyrir heilbrigðis- og endurhæfingaþjónustu síðar meir.
ÖBÍ styður áhersluna um að fjármögnun endurhæfingar byggi á raunverulegri þjónustuþörf, árangri og framtíðarþörfum samfélagsins fremur en sögulegri nýtingu.
ÖBÍ leggur mikla áherslu á að við þróun á endurhæfingu verði tryggt nægt framboð af hæfu starfsfólki um allt land, þar með talið sérfræðinga á sviði einhverfu, heyrnar, talmeinafræði og annarra sérhæfðra endurhæfingarsviða eins og sjúkra- og iðjuþjálfa.
8. Árangursmat og samræmdir endurhæfingarvísar
Að mati ÖBÍ er mikilvægt við þróun á nýju endurhæfingakerfi að samtímis verði þróaðir samræmdir endurhæfingarvísar til að meta gæði, árangur og aðgengi að endurhæfingarþjónustu. Dæmi um samræmda endurhæfingarvísa geta verið biðtími eftir endurhæfingarþjónustu, hlutfall einstaklinga sem fá endurhæfingu innan skilgreindra tímaramma og aðgengi að þjónustu óháð búsetu og fötlun.
Lokaorð
ÖBÍ styður meginstef hvítbókarinnar og telur hana fela í sér mikilvægt tækifæri til að styrkja endurhæfingarþjónustu á Íslandi. Til að markmið hennar nái fram að ganga þarf að mati ÖBÍ að tryggja skýra samþættingu milli kerfa, jafnt aðgengi að þjónustu um land allt, notendamiðaða nálgun og árangursmat sem tekur mið af raunverulegum lífsgæðum og samfélagsþátttöku.
Ekkert um okkur án okkar!
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Hvítbók um endurhæfingarþjónustu | Samráðsgátt | Heilbrigðisráðuneytið | Mál: S-160/2026
Umsögn ÖBÍ, 28. september 2026

