
Wikimedia Commons / Helgi Halldórsson
ÖBÍ réttindasamtök gera ekki athugasemdir við meginmarkmið frumvarps um leikskóla en leggja áherslu á að réttindi og hagsmunir fatlaðra barna verði höfð að leiðarljósi við framkvæmd þess, í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.
Samtökin leggja áherslu á að við framkvæmd laganna verði ávallt tryggt að fötluð börn og börn með miklar stuðningsþarfir njóti jafnra tækifæra til leikskóladvalar. Forgangsreglur sem byggja á systkinatengslum eða búsetu mega ekki leiða til þess að börn sem þurfa sérstakan stuðning eigi erfiðara með að komast að í leikskóla eða fá viðeigandi þjónustu.
ÖBÍ minnir á skyldur stjórnvalda samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, einkum 7. og 24. gr., sem kveða á um rétt fatlaðra barna til jafnræðis, þátttöku og menntunar án aðgreiningar. Við allar ákvarðanir um innritun þarf að gæta þess að það sem barni er fyrir bestu sé ávallt haft að leiðarljósi.
ÖBÍ telur því mikilvægt að í framkvæmd laganna verði sérstaklega tryggt gagnsæi, jafnræði og mat á þörfum einstakra barna þannig að réttur fatlaðra barna til leikskólagöngu og stuðnings í nærumhverfi sínu sé tryggður.
Ekkert um okkur án okkar!
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ
Leikskólar (innritun í leikskóla)
80. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 8. október 2026

