
„Að mati samtakanna ættu sjónarmið um lýðheilsu, öryggi notenda og ábyrga lyfjanotkun að vega þyngra en þau samkeppnis- og hagræðissjónarmið sem frumvarpið byggir einkum á.“
ÖBÍ réttindasamtök hafa tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lyfjalögum, nr. 100/2020, þar sem lagt er til að heimila almenna sölu lausasölulyfja utan lyfjabúða. Markmið frumvarpsins er m.a. að auka aðgengi að lausasölulyfjum og auka samkeppni á markaði.
ÖBÍ leggst gegn frumvarpinu og telur ekki sýnt fram á að þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu, muni bæta þjónustu við almenning með þeim hætti að réttlæti þau auknu áhættu- og öryggissjónarmið sem í húfi eru. Samtökin vilja sérstaklega benda á tvö atriði.
Aukið aðgengi getur leitt til óábyrgar notkunar og misnotkunar
Að mati ÖBÍ innifelur aðgengi að lausasölulyfjum utan lyfjabúða aukna hættu á óábyrgri notkun og misnotkun tiltekinna lyfja. Þetta á sérstaklega við um verkjalyf og önnur lyf sem geta valdið alvarlegum heilsufarslegum afleiðingum ef þau eru notuð rangt eða í of miklu magni. Þótt um lausasölulyf sé að ræða eru mörg þeirra ekki áhættulaus og geta valdið eitrunum, aukaverkunum eða milliverkunum við önnur lyf. ÖBÍ telur mikilvægt að afgreiðsla lyfja fari fram í umhverfi þar sem fagleg ráðgjöf og leiðbeiningar lyfjafræðinga eru aðgengilegar og þar sem öryggi notenda er haft að leiðarljósi.
Í þessu samhengi vísar ÖBÍ jafnframt til umsagnar Lyfjafræðingafélag Íslands, þar sem bent er á að rannsóknir sýni tengsl milli aukins aðgengis að verkjalyfjum í lausasölu og aukinnar tíðni eitrana og ofskömmtunar. Félagið bendir meðal annars á að sjálfseitranir með verkjalyfjum séu vaxandi viðfangsefni heilbrigðiskerfa og rannsóknir sýna að takmarkanir á aðgengi, pakkningastærðir og aldursmörk við sölu lyfja geti dregið úr alvarlegum eitrunum.
Gott aðgengi að lyfjum á Íslandi
Í öðru lagi, er það mat ÖBÍ að almennt er gott aðgengi að lyfjum hér á landi og ekki um skort að ræða. Apótek eru starfrækt í nær öllum helstu byggðakjörnum landsins og aðgengi að lyfjaþjónustu er mjög gott. Þá gera gildandi lyfjalög nú þegar ráð fyrir því að Lyfjastofnun geti veitt heimild til sölu tiltekinna lausasölulyfja í almennum verslunum á þeim svæðum þar sem langt er í næsta apótek eða lyfjaútibú. Samkvæmt gildandi framkvæmd hefur slík heimild verið veitt verslunum sem eru í meira en 20 km fjarlægð frá næsta lyfsölustað. Núgildandi fyrirkomulag tekur því þegar mið af þörfum íbúa dreifðari svæða án þess að gengið sé á þau öryggissjónarmið sem liggja að baki reglum um sölu lyfja.
ÖBÍ tekur jafnframt undir það sjónarmið sem fram kemur í umsögn Lyfjafræðingafélag Íslands að raunverulegt aðgengi að lyfjum verði ekki metið eingöngu út frá fjölda sölustaða. Aðgengi felur einnig í sér aðgang að öruggri lyfjaafgreiðslu, lyfjafræðilegri ráðgjöf og þeirri heilbrigðisþjónustu sem apótek veita. ÖBÍ telur því ekki sýnt fram á að nauðsyn sé á þeirri víðtæku rýmkun sem frumvarpið felur í sér.
Lokaorð
ÖBÍ telur að ekki hafi verið færð fullnægjandi rök fyrir því að núverandi kerfi sé ófullnægjandi eða að nauðsyn sé á svo víðtækri rýmkun heimilda til sölu lausasölulyfja sem frumvarpið felur í sér. Að mati samtakanna ættu sjónarmið um lýðheilsu, öryggi notenda og ábyrga lyfjanotkun að vega þyngra en þau samkeppnis- og hagræðissjónarmið sem frumvarpið byggir einkum á. Jafnframt benda samtökin á að lyfjadreifing sé samkvæmt markmiðum lyfjalaga hluti af heilbrigðisþjónustu og því beri að hafa öryggi sjúklinga og gæði lyfjaþjónustu að leiðarljósi við allar breytingar á regluverki um sölu lyfja.
Með hliðsjón af framangreindu leggst ÖBÍ gegn frumvarpinu og hvetur Alþingi til að viðhalda því fyrirkomulagi sem nú er í gildi um sölu lausasölulyfja í ljósi þess að núverandi fyrirkomulag hefur tryggt gott aðgengi að lyfjum um land allt og að meðferð og ráðgjöf vegna lyfja fari fram undir faglegri ábyrgð heilbrigðisstarfsfólks.
Ekkert um okkur án okkar.
Virðingarfyllst,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka
Lyfjalög (lausasala lyfja) | Ferill þingmáls | Alþingi
190. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 9. nóvember 2026

