AtvinnumálKjaramálUmsögn

Skattfrádráttur vegna kostnaðar við ferðir til og frá vinnu

By 23. október 2026október 29th, 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök hafa til umsagnar tillögu til þingsályktunar um skattfrádrátt vegna kostnaðar við ferðir til og frá vinnu. ÖBÍ vill koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum, en að mati ÖBÍ er viðkomandi þingsályktunartillaga mikilvæg til að auka jafnræði á vinnumarkaði og auka atvinnuþátttöku fatlaðs fólks. Verði tillagan samþykkt mun hún draga úr þeim íþyngjandi fjárhagslegu áhrifum ferðakostnaðar til vinnu, þegar búseta er yfir 50 km frá vinnustað.

ÖBÍ telur að þingsályktunartillagan innifeli í sér jákvæð áhrif á atvinnuþátttöku fatlaðs fólks, því hún gefur fötluðu fólki tækifæri til að vinna lengra frá heimili sínu án þess að setja fyrir sig mikinn ferðakostnað. Þingsályktunartillagan getur dregið úr hindrunum fólks og fatlaðs fólk að stunda atvinnu sem er fjær heimili sínu en ekki í næsta nágrenni við það.

Tillagan styrkri atvinnuþátttöku fatlaðs fólks sérstaklega, en það er mjög algengt að fatlað fólk hafi takmarkaða möguleika til að nýta almenningssamgöngur vegna aðgengishindrana eða eðlis fötlunar sinnar og reiðir sig því á einkabifreið eða aðrar kostnaðarsamari samgöngulausnir. Afleiðingin er sú að kostnaður við atvinnuþátttöku getur verið verulegur og í sumum tilvikum orðið raunveruleg hindrun í vegi fyrir virkri þátttöku á vinnumarkaði.

ÖBÍ telur jafnframt tillöguna jákvæða í ljósi nýlegra breytinga á almannatryggingalögum með tilkomu hlutaörorkulífeyris. Hlutaörorkulífeyrir skapar einstaklingum með skerta starfsgetu betri skilyrði til að stunda vinnu eftir getu. Ef einstaklingur þarf að bera háan ferðakostnað til að geta stundað vinnu getur ávinningur af aukinni atvinnuþátttöku minnkað verulega og snúist upp í andhverfu sína. Skattfrádráttur vegna ferða til og frá vinnu gæti því orðið mikilvæg viðbót við þau úrræði sem ætlað er að efla atvinnuþátttöku fólks með skerta starfsgetu.

Að mati undirritaðra samræmist tillagan markmiðum stjórnvalda um aukna atvinnuþátttöku fatlaðs fólks, bætt lífskjör og sterkari tengsl einstaklinga með skerta starfsgetu við vinnumarkaðinn. Með því að draga úr kostnaði sem fylgir atvinnuþátttöku getur tillagan stuðlað að auknu sjálfstæði, meiri fjárhagslegu öryggi og auknum tækifærum fatlaðs fólks til að taka virkan þátt í atvinnu- og samfélagslífi á eigin forsendum.

Ekkert um okkur án okkar!

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ


Skattfrádráttur vegna kostnaðar við ferðir til og frá vinnu | Ferill þingmáls | Alþingi
186. mál, þingsályktunartillaga.
Umsögn ÖBÍ, 23. október 2026