
ÖBÍ styður frumvarpið. Ýmis dæmi eru um mál á sviði almannatrygginga þar sem reynir á túlkun EES-réttar. Um getur verið að ræða flóknar reglugerðir sem lítil reynsla er af að vinna með hér á landi, svo sem reglugerð (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa. Mikilvægt er að stuðla að réttri túlkun á EES-löggjöf í slíkum tilvikum til að tryggja réttindi borgaranna.
Fólk sem þarf að gæta réttar síns hefur oft ekki efni á að höfða dómsmál og vönduð úrlausn á stjórnsýslustigi dregur úr þörf á rekstri kostanaðarsamra dómsmála. Jafnframt verður að leitast við að koma í veg fyrir að málsmeðferðartími í kærumálum verði of langur. Mætti í því sambandi bæta inn ákvæði um að úrskurðaraðili skuli taka afstöðu til þess hvort leitað verður ráðgefandi álits svo fljótt sem auðuð er. Einnig að úrskurð skuli kveða upp svo fljótt sem verða má eftir að ráðgefandi álit hefur verið birt. Einnig að úrskurðaraðili skuli fara fram á að mál hljóti flýtimeðferð hjá EFTA dómstólnum þegar við á.Virðingarfyllst,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ
Stjórnsýslulög (ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins) | Ferill þingmáls | Alþingi
100. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 16. nóvember 2026
ÖBÍ réttindasamtök eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Hlutverk samtakanna er að koma fram fyrir hönd fatlaðs fólks í hvers kyns hagsmunamálum.

