
Adobe Stock
ÖBÍ réttindasamtök leggja áherslu á að öll kjörgögn og allar upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði fyllilega aðgengilegar öllu kosningarbæru fólki komi til hennar.
Í því felst meðal annars að kjörstaðir séu aðgengilegir jafnt hreyfihömluðu sem sjónskertu fólki, merkingar séu greinilegar, næði sé gott og aðstoð tiltæk. Kjósendur geti vænst skilnings starfsfólks og fengið stuðning á kjörstað. Upplýsingar um kosningarnar séu skýrar og auðskildar og uppfylli WCAG 2-staðalinn um stafrænt aðgengi.
Ekkert um okkur án okkar.
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu
516. mál, þingsályktunartillaga.
Umsögn ÖBÍ, 30. mars 2026

