AðgengiAlmannavarnirSveitarfélögUmsögn

Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón)

By 25. september 2026No Comments
Maður liggur á gólfi inni í stofu, með hendurnar yfir höfði í verndarstöðu eins og mælt er með í jarðskjálfta („drop, cover, hold“). Við hlið hans er hjólastóll sem hefur oltið um koll.

ÖBÍ réttindasamtök hafa um nokkurt skeið bent á að þörf sé á að breyta löggjöf um almannavarnir og bæta viðbragðsáætlanir svo að betur verði gert ráð fyrir björgun fatlaðs fólks í hamförum og öðru hættuástandi. Í orðskýringum 3. gr. frumvarps til laga um almannavarnir á 157. löggjafarþingi (þingskjal 396 – 287. mál) er gert ráð fyrir að fjallað sé um sérstöðu fatlaðs fólks og jaðarsettra hópa í samfélaginu í viðbragðsáætlun. Frumvarpið hefur ekki náð fram að ganga og þar af leiðandi skortir sérstaklega umfjöllun um fatlað fólk í lögum um almannavarnir.

Ástæða er til þess að setja inn sérstök ákvæði sem snúa að fötluðum íbúum sveitarfélaga í lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997.

Sérsniðið áhættumat þarf að fara fram á hættusvæðum þar sem kortlagt er hvaða íbúar þurfi beina aðstoð við rýmingu, hvaða hjálpar- og lækningatæki þeir noti og þurfi að fylgja. Meta þarf sérstaklega hverjir búa innan hættusvæða, hvort þeir geti sjálfir brugðist við viðvörunum, hvort aðgengi að rýmingarleiðum sé nægilegt og hvaða möguleika viðbragðsaðilar hafi til að liðsinna þeim á réttan hátt í aðstæðum.

Skrá þarf hvaða íbúar þurfi sérstaka aðstoð og hvaða aðstoð þeir þurfi við rýmingu. Taka þarf í reikninginn að aðstæður geta verið mismunandi hverju sinni og að þar sem er skriðuhætta gæti þurft að útbúa sérstakar rýmingarleiðir og ferla fyrir fólk með hreyfihömlun. Þó skal bent á að í Fjarðarbyggð hefur kortlagning farið fram á búsetu og samsetningu íbúa eftir aldri, kyni, fjölda og svo framvegis. Skráning eftir fötlun hefur verið takmörkuð enda er um viðkvæmar persónuupplýsingar að ræða. Skoða þarf sérstaklega hvernig hægt verði að leysa þann vanda.

Í frumvarpinu segir að markmið laganna sé að „að aftra manntjóni og slysum af völdum ofanflóða, einkum á heimilum og mennta- og heilbrigðisstofnunum.“ Fatlað fólk og sjúklingar eru í sérlega viðkvæmri stöðu í neyðaraðstæðum, en athygli vekur að frumvarpið nefnir ekki sérstaklega þjónustukjarna eða  búsetuúrræði, dagsþjónustu, vinnustaði eða aðra félagslega innviði.  Ef Ofanflóðasjóður eða stjórnvöld þurfa á einhverjum tíma að forgangsraða framkvæmdum gæti orðalagið leitt til þess að almennar íbúðir og heilbrigðisstofnanir njóti sterkari verndar en ofangreind úrræði þar sem margt fatlað fólk hefst við. Þá ber að hafa það í huga að fatlað fólk er ekki einsleitur hópur og aðstæður þar af leiðandi mismunandi.

Viðvörunarkerfi og upplýsingar þurfa að ná til allra auk þess sem nálgast þarf fólk sem á erfitt með að átta sig á aðstæðum með varfærni. Reynslan hefur sýnt okkur að margt fólk ræður illa við að vera skyndilega kippt út úr sínum daglega veruleika og við rýmingu svæða eiga margir erfitt. Því þarf að gera ráð fyrir að fólk sé stutt í gegnum ástandið með samfelldri sál- og félagslegri aðstoð.

Þá þurfa neyðarathvörf að vera aðgengileg og vel útbúin og halda þarf rýmingaræfingar með þátttöku fatlaðs fólks.

Ekkert um okkur án okkar.

Með vinsemd og virðingu,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Stefán Vilbergsson ÖBÍ
verkefnastjóri ÖBÍ


Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón)
4. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBí, 25. september 2026


Þessi umsögn var lögð fram við frumvarpið á 157. löggjafarþingi og er lagt fram að nýju lítillega breytt.