HeilbrigðismálUmsögn

Viðbrögð við lyfjaskorti o.fl.

By 9. apríl 2026apríl 13th, 2026No Comments
Mynd af töflum.

ÖBÍ réttindasamtök fagna þeim áformum heilbrigðisráðherra að draga úr lyfjaskorti í frumvarpsdrögunum sem hér eru til umsagnar og styðjum framgang þess. Lyf eru mörgu fötluðu fólki og endurhæfingar- og örokulífeyristökum lífsnauðsynleg og skortur á þeim því grafalvarlegt mál.

Frumvarpinu er ætlað að auka getu Lyfjastofnunar til að takast á við lyfjaskort. Eins og fram kemur í greinargerð frumvarpsins er „skortur á lyfjum [er] vaxandi ógn við lýðheilsu sem grefur undan rétti sjúklinga til að fá aðgang að viðeigandi læknismeðferð.“ Því er nauðsynlegt að Lyfjastofnun hafi allar heimildir til að bregðast við lyfjaskorti, til að lágmarka áhrif skorts á heilsu fólk. ÖBÍ styður allar aðgerðir til að draga úr lyfjaskorti og þar með lágmarka þau áhrif sem lyfjaskortur getur haft í för með sér.

Stýring og/eða takmörkun á afgreiðslu og afhendingu lyfja við ákveðna sjúklingahópa

ÖBÍ styður framkomnar tillögur um viðbrögð við lyfjaskorti, sem Lyfjastofnun er heimilt að grípa til, og eru tilgreindar með fjórum leiðum. Eftirfarandi tillögu styður ÖBÍ sérstaklega c. lið 32. gr. a. þar sem segir: „Lyfjastofnun er heimilt að stýra og/eða takmarka afgreiðslu og afhendingu lyfja við ákveðna sjúklingahópa, ákveðna aldurshópa eða sjúkdómsástand sjúklinga samkvæmt áhættumati …“

Greiðsluþátttaka í lyfjum

Í frumvarpinu er fjallað um ákvörðun um greiðsluþáttttöku á lyfjum. ÖBÍ styður að ferli um greiðsluþátttöku verði einfaldað og færð til Sjúkratryggingarstofnunar Íslands (SÍ). Tilgangur þessarar breytingar er að einfalda alla stjórnsýslu varðandi greiðsluþátttöku lyfja og koma í veg fyrir tvíverknað við vinnslu greiðsluþátttöku hjá Sjúkratryggingastofnun og Lyfjastofnun. Þó að ÖBÍ styður þessa breytingu, hvetja samtökin að vandað verði til verka.

ÖBÍ fagnar þeim áformum um að heimilt verði að veita einstaklingum greiðsluþátttöku í lyfjum sem hafa ekki markaðsleyfi hér á landi eða svokölluð undanþágulyf, sem hingað til hafa verið án greiðsluþátttöku. Að mati ÖBÍ styrkir þessi aðgerð stöðu stór hóps fólks aðgengi að nauðsynlegum lyfjum.

ÖBÍ styður það að tryggja eigi sanngjarnt lyfjaverð hér á landi og að miðað verði við verðlagningu lyfja hjá öðrum Norðurlöndum og EES-ríkjum.

Aukið hlutverk lyfjafræðinga

ÖBÍ styður þá breytingu þar sem lyfjafræðingum verði falið meiri hlutverk og ábyrgð, m.a. að ávísa bóluefnum sem notuð eru til bólusetningar í lyfjabúðum og öðrum lyfjum sem teljast nauðsynleg í tengslum við hana.

Réttur einstaklinga til upplýsinga

Í frumvarpinu er mikilvægur réttur einstaklings tryggður um rétt hans til að fá upplýsingar um hverjir hafa aflað upplýsinga um hann úr lyfjaávísanagátt, þar með talið hvar og hvenær upplýsinga var aflað og í hvaða tilgangi.

Lokaorð

Ítrekaður er stuðningur ÖBÍ réttindasamtaka við framkomið frumvarp frá heilbrigðisráðherra.

ÖBÍ er reiðubúið til samráðs, ráðgjafar og samvinnu á öllum stigum málsins.

Ekkert um okkur án okkar!

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtökum


Viðbrögð við lyfjaskorti o.fl.
537. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 9. apríl 2026