AðgengiStjórnsýsla velferðarmálaSveitarfélögUmsögn

Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga

By 13. nóvember 2026nóvember 16th, 2026No Comments
Íslandskort með nöfnum sveitarfélaganna 62 fjólublái litur fatlaðs fólks og ÖBÍ réttindasamtaka tákna sjóinn í kringum landið.

ÖBÍ réttindasamtök telja mikilvægt að móta sameiginlegan skilning og viðmið um sjálfbærni sveitarfélaga. Sveitarfélög eru í öllum stærðum og gerðum og dæmi um að áskorun í einu sveitarfélagi sé óþekkt í öðru sveitarfélagi. Þrátt fyrir þessa fjölbreytni er brýnt að skipulag og starfsaðstæður allra sveitarfélaga séu þannig að þau geti sjálf borið ábyrgð á framkvæmd lögbundinna verkefna sem þeim er falið að sinna, þ.m.t. þjónustu við fatlað fólk. ÖBÍ vill koma eftirfarandi ábendingum og athugasemdum á framfæri.

Grundvöllur sjálfbærrar þróunar

Í skjalinu má finna ellefu þætti sem eru lagðir til grundvallar við mótun viðmiða um sjálfbæra þróun sveitarfélaga. ÖBÍ tekur almennt undir þær áherslur sem lagðar eru til grundvallar í 3. kafla en telur skort á áherslum sem tilgreina sérstaklega stuðning og aðhald svo öll sveitarfélög geti náð markmiðum viðmiðanna og viðhaldið góðum árangri. ÖBÍ leggur til nýjan þátt til viðbótar við fyrirliggjandi þætti í 3. kafla:

Stuðningur og aðhald

Sveitarfélög eiga að hafa jafnt aðgengi að þeim aðföngum sem þarf til að framkvæma úrbætur í samræmi við viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga. Öll sveitarfélög verða að taka virkan þátt í að innleiða viðmiðin kerfislega með sameiginlegum aðgerðaráætlunum til að ná fram markmiðum um sjálfbæra þróun sveitarfélaga um land allt. 

Samkvæmt 78. gr. laga nr. 33/1944 um Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands skulu sveitarfélög sjálf ráða málefnum sínum eftir því sem lög ákveða. Sveitarfélög sem stjórnsýslustig búa því yfir miklu frelsi en bera einnig mikla ábyrgð. Mikilvægt er að ríkið og öll sveitarfélög rói í sömu átt svo markmið viðmiðanna nái fram að ganga í öllum landshlutum. Því þurfa allir aðilar að sameinast um verkferla, aðgengi að stuðningi og vera reiðubúnir til að bregðast við gagnrýni.

Mælikvarðar og viðmið – Styrkur stjórnsýslu

Að mati ÖBÍ eru áform um mótun mælikvarða fyrir skilgreind viðmið jákvætt skref í rétta átt. Eitt mikilvægasta lögbundna verkefni sveitarfélaga er þjónusta við fatlað fólk en frumkvæðisathugun Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) á stoð- og stuðningsþjónustureglum sem kom út í febrúar 2025 leiddi í ljós að einungis sex sveitarfélög höfðu sett sér allar reglur um stuðningsþjónustu og voru með þær uppfærðar.

ÖBÍ telur að spurningin „sinnir sveitarfélagið (eitt eða í samstarfi) eftirfarandi lögskyldum verkefnum?“ og notkun á kvarðanum náð/ekki náð ófullnægjandi og líkleg til að gefa ranga mynd að stöðu mála. Í fyrsta lagi, innbera öll tilgreind lögskyld verkefni fjölmarga verkþætti. Margir þeirra lúta ákveðnum kröfum í reglugerðum eða gæðaviðmiðum sem verða að vera til staðar þó svo að sveitarfélög hafa ákveðið svigrúm varðandi útfærslu. Sem dæmi varðandi þjónustu við fatlað fólk má nefna: stoð- og stuðningsþjónustu, liðveislu, akstursþjónustu, almenn- og sértæk félagsleg leiguhúsnæði auk ábyrgð á framkvæmd notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA). Í öðru lagi, er mikilvægt að spurning mælikvarðans sé skýr og ótvíræð. Í því ljósi er vert að ígrunda hvort fyrr tilgreind spurning feli í sér ófrávíkjanlega kröfu um að veita virka þjónustu á öllum sviðum í tilteknu lögskyldu verkefni?  Eða, hvort það er nóg að sveitarfélag veiti einungis þjónustu á einu sviði, t.d. að sveitarfélag starfræki lítinn íbúðarkjarna en sinnir ekki annari þjónustu við fatlað fólk?

ÖBÍ leggur til að stjórnvöld endurskoði spurninguna „sinnir sveitarfélagið (eitt eða í samstarfi) eftirfarandi lögskyldum verkefnum“, og leggur til að viðmiðið verði mælt sem hlutfall. ÖBÍ hvetur stjórnvöld til að greina einstaka verkþætti fyrir hvert lögskylt verkefni sveitarfélaga og nýta þá sem hluta að mælikvörðum um stöðu mála. Einnig er vert að mæla hvort sveitarfélag hafi sett sér allar reglur sem lög kveða á um og hvort þær eru uppfærðar í samræmi við gildandi lög og reglugerðir.

Lýðræðisleg virkni og ánægja íbúa – Samráðsgátt og aðgengi

Mörg vandamál sem fatlað fólk mætir í dag eiga rætur sínar að rekja til þess að ákvarðanir eru teknar, og reglugerðum breytt án samráðs við þau sem málið varðar. Þrátt fyrir að reglur sveitarfélaga hafi víðtæk áhrif á daglegt líf íbúa, sérstaklega fatlað fólk sem treysta á lögbundna þjónustu, er samráð á sveitarstjórnarstigi almennt ómarkvisst og misjafnt.

Ekki er sérstaklega fjallað um hvernig tryggja eigi að fatlað fólk og hagsmunasamtök þess geti tekið þátt í samráði á jafnréttisgrundvelli. Til dæmis þarf að tryggja að fundir, kynningarefni, umsagnarbeiðnir og rafrænar samskiptaleiðir séu aðgengilegar fólki með mismunandi skerðingar. Meðal annars þarf að huga að auðlesnu máli, táknmálstúlkun, textun, sjónlýsingum og aðgengilegum stafrænum lausnum.

Reykjavíkurborg hefur sett á fót samráðsgátt en flest sveitarfélög landsins bjóða hins vegar enga slíka leið fyrir íbúa og samtök til að leggja inn umsagnir um fyrirhugaðar reglur eða áætlanir. Að mati ÖBÍ væri æskilegt að stofnuð verði ein miðlæg samráðsgátt sveitarfélaga, rekin undir yfirstjórn innviðaráðuneytis, þar sem allar reglugerðir, samþykktir, þjónustu- og verklagsreglur sem vísað er áfram úr sveitarstjórn til nefnda, ráða eða sviða, verði birtar áður en þær taka gildi. Þrátt fyrir að slík samráðsgátt sé ekki starfrækt í dag telur ÖBÍ mikilvægt að hvert og eitt sveitarfélag kalli tímanlega eftir áliti íbúa í gegnum aðgengilegt viðmót um fyrirhugaðar reglur eða áætlanir.

ÖBÍ leggur til að stjórnvöld bæti við eftirtalda mælikvarða til að meta stafrænt aðgengi og hvort, hvernig og hversu oft sveitarfélög óski eftir umsögnum frá íbúum og samtökum um fyrirhugaðar reglur eða áætlanir í öllum málaflokkum áður en ákvörðun er tekin:

Samráðsgátt:

Sveitarfélag er með aðgengilega og virka samráðsgátt fyrir umsagnir um fyrirhugaðar reglur eða áætlanir í öllum málaflokkum.

Samráð:

Hlutfall reglna eða áætlana í öllum málaflokkum sem voru auglýst í opnu samráði fyrir íbúa og samtök af heildarfjölda samþykkta reglna eða áætlana sveitarfélags.

Aðgengi að upplýsingum:

Vefsvæði, samráðsgátt, tilkynningar og annað útgefið efni á vegum sveitarfélags er aðgengilegt í samræmi við WCAG staðallinn (auðlæsiform, skjálesanleiki, og hljóðyfirlestur).

Aðgengi á heimilum, að húsnæði og samgöngum

Aðgengilegt húsnæði er ein af grunnforsendum sjálfstæðs lífs. Í kafla 4.7 er fjallað um stöðu innviða og eigna sveitarfélaga, ástand þeirra, viðhaldsþörf og nýfjárfestingar. Einnig er minnst á þjónustu við eldra fólk og stuðning til þess að fólk geti búið sem lengst á eigin heimili. Hins vegar er ekki útfært hvernig á að auka aðgang fatlaðs fólks og aldraðra að styrkjum og ráðgjöf til aðlögunar húsnæðis að þörfum þess og viðeigandi hjálpartækjum og tæknibúnaði til að geta búið á eigin heimili með viðeigandi stuðningi. Það minnkar líkurnar á að fólk þurfi að reiða sig í miklum mæli á félagsþjónustu sveitarfélagsins eða flytja í önnur búsetuúrræði.

Einnig er mikilvægt að við skipulag og uppbyggingu nýrra íbúðahverfa sé aðgengi tryggt fyrir alla með algildri hönnun og nálægð við almenningssamgöngur, þjónustu og verslun. Ferðafrelsi er forsenda þess að fólk geti sótt nám, atvinnu, félagsstarf og menningarviðburði. Akstursþjónusta fatlaðs fólks er þrautalending fyrir marga þegar aðgengi að strætó er óviðunandi. Því þurfa tengingar við almenningssamgöngur að vera tilbúnar þegar fólk flytur inn.

ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.

Ekkert um okkur án okkar!

Með vinsemd og virðingu,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ

Rósa María Hjörvar
stafrænn erkefnastjóri ÖBÍ

Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ


Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga | Samráðsgátt | Mál: S-191/2026 
Innviðaráðuneytið. Umsögn ÖBÍ, 13. nóvember 2026