Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík um ME, langvinnt COVID, umhverfisveikindi og POTS

29. október @ 08:50 - 16:00

Handan greiningarinnar – Aukinn skilningur á flóknum langvinnum veikindum

BRÚ MILLI HEIMSÁLFA

Opin alþjóðleg ráðstefna 29. október þar sem leiðandi innlendir og erlendir sérfræðingar á sviði ME, langvinns COVID, umhverfisveikinda og POTS koma saman til að miðla nýjustu þekkingu úr rannsóknum og klínísku starfi. Ráðstefnan fer fram á ensku, á hótel Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2 í sal A.

Á ráðstefnunni munu heimsþekktir fyrirlesarar, þar á meðal sérfræðingar sem hafa verið í fararbroddi rannsókna í áratugi, fjalla um nýjustu framfarir í greiningu, meðferð og skilningi á sjúkdómunum. Þátttakendur fá einstakt tækifæri til að kynnast nýrri vísindalegri þekkingu, heyra af reynslu fremstu sérfræðinga og taka þátt í mikilvægu samtali um framtíð þjónustu, rannsókna og meðferða.​

Ráðstefnan er sérstaklega áhugaverð fyrir lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, sálfræðinga, félagsráðgjafa og annað heilbrigðisstarfsfólk sem vill auka skilning sinn á þessum flóknu og oft misskildu sjúkdómum. Jafnframt er ráðstefnan mikilvæg fyrir starfsfólk stjórnvalda, sveitarfélaga og stofnana sem starfar að félags- og heilbrigðismálum. Fjallað verður um áskoranir sjúklingahópana og hvernig bæta megi þjónustu og stuðning.

Sjúklingar, aðstandendur og aðrir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir. Fyrir þau býður ráðstefnan upp á einstakt tækifæri til að hlýða á fremstu sérfræðinga heims, afla sér áreiðanlegra upplýsinga og kynnast nýjustu rannsóknum sem eru að breyta skilningi okkar á þessum sjúkdómum.

Með því að byggja brú milli heimsálfa, fræða og miðla reynslu þá skapast vettvangur sem eflir skilning, samstarf og von um bættar lausnir fyrir þau sem lifa með þessi veikindi.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur á þessa mikilvægu og spennandi ráðstefnu.

Upplýsingar