Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Þegar ADHD fylgir þér“ – Málþing ADHD samtakanna

30. október

Veislusmárinn – Sporhamrar 3, 112 Reykjavík og í beinu streymi.

ADHD geta fylgt ýmsar áskoranir sem birtast meðal annars í námi, starfi, nánum samböndum, foreldrahlutverki og félagslífi. Þessar aðstæður geta orðið flóknar og krefjandi. Ofangreind áhrif eru ekki alltaf sýnileg öðrum sem hefur meðal annars leitt til þess að langur tími hefur liðið áður en einstaklingar með ADHD mæti skilningi, fái stuðning eða greiningu.

Á málþinginu verður fjallað um þegar ADHD fylgir út frá uppeldi, atvinnu, fjármálum, samböndum og sjálfsmynd. Lögð verður áhersla á að varpa ljósi á áskoranir sem geta fylgt ADHD og miðla reynslu, þekkingu og lausnum sem nýtast í raunverulegum aðstæðum.

Málþingið er ætlað fullorðnum með ADHD og aðstandendum sem og fagfólki sem starfar með eða þjónusta fólk með ADHD.

Dagskrá

10:00 – 10:15 – Setning málþings
Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD samtakanna

10:15 – 10:30 – Ávarp

10:30 – 10:50 – Afhending Hvatningarverðlauna

10:50 – 11:30 – Hvert fóru peningarnir? –
Frá hvatvísi og frestun til betri líðan, Valdis Hrönn Berg fjárhagsmarkþjálfi

11:30 – 12:10 – Þegar álagið verður of mikið – ADHD og langvarandi streita, Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðsstjóri forvarna hjá VIRK

12:10 – 12:30 – Hádegishlé

12:30 – 13:10 – Frá togstreitu til tengingar – ADHD og náin sambönd, Anna Elísa Gunnarsdóttir félagsráðgjafi

13:10 – 13:50 – Þegar ADHD fylgir – uppeldi, tilfinningar og taugakerfið, Sigrún Birna Sigurðardóttir sálfræðingur

13:50 – 14:00 – Málþingsslit

Fundarstýra: Birna Rún Eiríksdóttir leikkona og uppistandari

Upplýsingar

Vettvangur