Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Allir með leikarnir

23. október @ 10:00 - 14:00

Laugardaginn 31. október fara Allir með leikarnir fram og Laugardalshöllin fyllist af gleði og skemmtun.

Allir með leikarnir eru íþróttahátíð fyrir börn á grunnskólaaldri með fatlanir eða stuðningsþarfir. Á leikunum fá þátttakendur tækifæri til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi. Markmið leikana er að kynna fyrir börnum ólíkar íþróttir og gefa þeim tækifæri til að uppgvötva íþrótt sem vekur áhuga þeirra.
Áhersla er lögð á leik, gleði og þátttöku á eigin forsendum. Engin krafa er gerð um fyrri reynslu af íþróttum og eru allir velkomnir.

Allir með leikarnir verða sannkallað íþróttapartý þar sem ýmislegt skemmtilegt verður í boði!
Tækifæri til að prófa alls konar íþróttagreinar
Hrekkjavökuþema – öll hvött til að mæta í búningi!
Sóli og Sóla mæta á svæðið
DJ heldur uppi stuðinu
Pizzaveisla
Landsliðsfólk mætir og heilsar upp á gesti 🇮🇸

📅 Laugardagurinn 31. október 2026
⏰ 10:00–14:00
🏟️Laugardalshöll
👥 6–16 ára
🎟️ 1.500 kr.

Skráning fer fram á Abler:
https://www.abler.io/shop/umfi?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6Njc1OTk=

Upplýsingar

Vettvangur